Njótið alls, þarfnist einskis

Monday, March 28, 2005

Mars

Dagur 300 # 62 dagar eftir Föstudagurinn langi 25. Mars Hélt að ég færi aldrei yfir 300 dagana >Vaknaði um kl 07 var drullu slapur svaf lítið um nóttina var með kvef, hálsbólgu og smá hita. Var uppí til kl 11 hafði verið í sambandi við Raggý og ætlaði hún að koma með stelpurnar í bæinn, hún kom og náði í mig skutlaði mér til Siggu og fór hún þá með stelpurnar til Pabba síns og klippti hann í leiðinni. Sótti mig aftur til Siggu og fórum þá til Kef. Fór heim og var þar um daginn, Birnir og Dísa komu í heimsókn fór síðan um kl 17; í Rvk ekki gerðist neitt merkilegt í dag.. Um kvöldið fann ég að ég var nú eitthvað að hressast, ákvað að fara út að hlaupa og tók ég hringinn minn kringum laugardalinn á 24,01 mín úr 25,18 bætti mig semsagt um 1,17 mín sem mér finnst bara nokkuð ágætt, verð að vera kominn niður í 20 áður en að tíminn verður búinn hér, veit að það verður frekar erfitt, en þrátt fyrir að vera slappur náði ég þessu, svitnaði vel og hóstaði þannig að ég hef örugglega náð að losa þessa flensu eitthvað úr mér. Þega ég kom aftur heim eftir að hafa labbað í 10 mín eftir þetta hlaup þá horfði ég á seinni hlutann af Da vincy code fór í sturtu og skrapp til Jóhönnu með möppu var þar í rúmann klukkutíma hélt reyndar að klukkan væri orðin miklu meira en fór heim, fékk mér epli, vatn og pikkaði inn í tölvuna........ Var búinn að gleyma því að ég hafði gleymt því að Íris var búinn að gera ráð fyrir hádegismat í dag, greiið var ekki mjög ánægð með mig að gleyma því..svona er maður farinn að eldast aðeins.. Dagur 298-299 # 63-64 dagar eftir Miðvikudagur & fimmtudagur 23/24. Mars Stutt vinnuvika >Fór um morguninn í Gv var hálf slappur búinn að vera með kvef og hálsbólgu, sat þar í smá stund og fór svo til Kef, skutlaið Marel í leikskólann og fór svo að vinna, þetta var nú hálflélegt hádegi ekki nem aum 20 manns að borða, kláruðum að undirbúa veisluna út í bæ, fór svo á spani til Rvk. Eftir páskadinnerinn, en við fáum ekki mat hérna fyrr en næsta þriðjudag þá lagði ég mig aðeins og vaknaði við að Sigga Dögg var að rukka mig um mat, skutlaðist til hennar og sat þar í smá stund var enn smá slappur og fór heim að sofa. Vaknaði um kl 07, fór fljótlega til Kef, stoppaði á leiðinn á staðnum sem Jói kokkurinn minn, nemi og vinur lést fyrir 2 árum eða þann 28 mars um kl 07:00 vildi svon aðeins kíkja á aðstæður er búinn að hugsa mér það lengi og fannst stundin í morgun vera sú. Fór síðan áfram til Kef og kom við heima, fór síðan uppá Soho að taka aðeins til, enda ekki þörf á. Fór síðan með rusl á haugana og til mömmu og pabba í smá lunch. Fór síðan heim tók til í bókhaldinu hennar Írisar, hún bakaði handa okkur snúða fórum síðan öll í bæinn, Marel fór með Særúnu a Hudiny sýningu, Eva í fermingu og Garðar til Siggu, ég og Íris fórum heim til min, ég fór í sturtu síðan horfðum við á Da Vinci code heimildarmynd um bókina og leitina af kaleiknum..Íris var eitthvað pirruð yfir því, þannig að við fórum niður í bæ náðum í Garðar og Siggu fengum okkur að borða á Rosso Pombodoro ég fór síðan heim en Garðar og Íris að ná í Evu. Ég veit ekki hvernig morgundagurinn verður engar eru rúturnar svo snemma, ætla að athuga hvort að Raggy fari með stelpurnar á morgun eða hvað..var kominn í náttföt kl 21:45 og er að klára að skrifa, ætla að sýsla aðeins í tölvunni og fara svo að sofa............. Dagur 298 # 65 dagar eftir 9 vikur Þriðjudagur 22. Mars Byrjar enn ein vinnuvika Fór í ræktina og tók hrikalega á var samt ekki alveg í formi, fór siðan að vinna, brjálað var að gera í hádeginu og missti ég mig aðeins, eins og ég á til ef að allt er ekki eins og ég vil, bjargaðist nú allt og held ég að alllir hafi verið nú sáttir, fyrir utan kannski lætin í mér.... Sigga Dögg lagaði til resumið mitt, sem ég var búinn að setja upp en þar sem að ég er ekki sá besti í ensku þá veitti ekki af..Sendi það inn, umsókn um veitingastjórastöðu, gerði nú ekki ráð fyrir að það yrði haft samband við mig, en um 2 tímum seinna var hringt og spurt hvort að ég hefði verið að sækja um sem yfirkokkur en fannst á þeim að báðar stöðurnar væru opnar, fæ frekari fréttir eftir helgi...spennandi , þori nú ekki að setja inn hvaða staður þetta er.....Ætlaði að fara með cameruna okkar í viðgerð en þeir voru búnir að loka kl 17:00 kom 20 mín of seint.....Hringdi i Torfa og ætlum við að hittast í kvöld, þegar þetta er skrifað kl 20:02 Dagur 297 # 66 dagar eftir Mánudagur 21. Mars Tók rútuna og Keflavík vann ÍR Vaknaði um kl 07 tok þá daginn rólega fór með rútunni í Kef, fór beint í ræktina enda ekki farið síðan á föstudag, tók vel á fór síðan til mömmu og pabba og kíkti aðeins heim, hitti Evu og Garðar fór svo að vinna vann til ca 15+ sóttum þá Marel og fengum okkur að drekka, um kvöldið fór ég á leikinn, meiriháttar góð skemmtun og náðu Keflvíkingar að bursta Ír, fór síðan á AA fundinn mætti reyndar 10 mín of seint en það var í lagi, ágætis fundur rosalega margar konur sem voru að segja sögu sína, hefur ekki verið þannig áður.. Kíkti við í World Class til að tékka á hvað 2 mánuðir kosta í ræktinni þar sem að mér finnst ég ekki hafa þann tíma sem ég þarf í Kef..verð að hringja á morgun í Sunnu og tékka á hvað hún getur látið mig fá 2 mánuði á... Dagur 296 # 67 dagar eftir Sunnudagur 20. Mars Fjölskildudagur -við feðgarnir vöknuðum um kl 9 fengum okkur þá morgunmat, fórum í sturtu og þessháttar, Íris kom um kl 11 fórum að rúnta, náðum í Siggu og fengum okkur að borða á Ruby- síðan að rúnta meira og skutluðum Evu í Hafnarfjörð þar sem að hún fór í fermingu hjá vinkonu sinni. Á meðan fórum við í Íkea, Kringluna og chilluðum, ágætis dagur en ég var kominn heim kl 17:30 ætlaði að fara að hlaupa en var orðinn soldið tæpur á tíma.....pikkaðið í tölvuna, horfði á Oprah og síðan bara sitt lítið að hverju. Verð að ath klukkan hvað rútan til Kef fer á morgun þar sem að íris fór á bílnum og verð ég að redda mér þannig á morgun.. Dagur 295 # 68 dagar eftir Laugardagur 19. Mars Körfubolti Vöknuðum við feðgarnir ekki fyrr en um kl 9 fórum þá til Siggu og fengum okkur kaffi á Te og kaffi síðan, fór ég og Marel til Keflavíkur til að horfa á leikinn, Stoppuðum smá stund hjá mömmu og skilaði bílnum. Keflavík tapaði, fór síðan svo til beint í bæinn, Íris keyrði okkur, fór á stelpuleikinn þær töpuðu líka, kom síðan með Marel og lék hann sé í tölvunni og horfðum síðan á dvd fórum ekki að sofa fyrr en um kl 23.. Dagur 294 # 61 dagar eftir Föstudagur 18. Mars Pabba helgi... Fór í vinnu og var að vinna til kl 16:+ dreif mig þá að ná í Marel og fékk bílinn hjá mömmu og pabba, fórum við feðgarnir í bæinn, fengum okkur dinner og fórum síðan í bío sáum myndina vélmennin ný barna mynd sem var alveg ágæt, samt hlógum við nú meira af treilernum en hann var um nýustu myndina um Pink Panter og á að vera í anda Peter Sellers..fórum siðan heim og fengum okkur ávexti og síðan aðeins að horfa á dvd og að sofa. Dagur 292/3 # 69-70 dagar eftir Miðv/fimmtud 16/7. Mars Leikur í kvöld Fór í vinnu sleppti æfingu báða dagana en í gær fór ég á Körfuleikinn Kef-Grindavík og náðum við að vinna og förum þá áfram. Annars var nú lítið að gerast í vinnunnu, of svona yfirleitt. Hringdi á Kvíabryggju og talaði aðeins við Sigurjón allt í þokkalegu ástandi. Sigga Dögg borðaði með mér í gær hérna á Verndinni og fór síðan með mér á leikinn, skutlaði henni síðan heim eftir hann, í Kvöld fór ég í heimsókn til Betu frænku sat þar í góða 2tíma og fór síðan heim að pikka á tölvuna og hlusta á góða tónlist..... Dagur 291 # 71 dagar eftir 10 vikur Þriðjudagur 15. Mars Fór í Bíó Fór í Kef beint í ræktina síðan heim, með Marel á leikskólann og síðan að vinna, ágætt var að gera, Ægir kom í heimsókn fengum okkur smá kaffi og spjall. Seinnipartinn fór ég aftur heim, síðan til mömmu og pabba þau lánuðu mér bílinn þar sem að Íris þarf að nota hann til að komast á bingó, Eftir kvölmat fór ég að sækja Siggu og fórum við saman í Bío á Million dollar baby, myndin var þrusu góð og aðeins lengri en ég reiknaði með og var orðinn stressaður á að ná ekki inn á réttum tíma, en það hafðist nú allt, myndin var búinn kl 22:30. Fór þá heim, fékk mér skyr og fór svo að skrifa, lesa og að sofa..... Dagur 290 # 72 dagar eftir 11 vikur Mánudagur 14. Mars Garðar á afmæli í dag Fór í morgun til kef vakti Marel, fór með hann á leikskólann og síðan á æfingu, eftir æfingu keyrði Garðar mig til mömmu og síðan á Soho, var að vinna til kl 15; fór þá heim í smá afmæliskaffi og síðan í myndatöku en einhverrahluta vegna þa´var ekki teknar myndir af okkur Írisi með krökkunum, veit ekki, auðvitað áttum við að láta vita af því. Sótti um vinnu hjá Flugleiðum í dag svona til vara ef að Soho selst og ég verð atvinnulaus. Fór í bæinn og keyrði Siggu Dögg í Þjóðarbókhlöðuna og fór síðan á Verndina, sit nú og er að bíða eftir því að klukkan fer að nálgast níu svo að ég geti farið á AA fundinn... Dagur 284-289 # 78-73 dagar eftir 11 vikur Þriðjud-Sunnud 8-13. Mars Heil vika Dagarnir eru fljótir að líða núna, vakna alla virka morgna kl 06:30 fer í Keflavík og byrja annaðhvort að æfa eða að vekja Marel og koma honum á Leikskólann og síðan að vinna. Var að vinna til 15/16 fór þá aðeins heim og síðan í Reykjavík. Það var nú lítið sem bar á þessa viku nema þá helst að það hefur verið aukning á Soho og hefur bara gengið nokkuð vel. Ég þurfti ekki að vinna neitt um helgina. Íris átti vaktina þannig að það passaði vel að ég væri með Marel og var hann með mér bæði á föstudagskvöldið og laugadaginn fórum síðan heim á Sunnudeginum. Hann var búinn að bíða spenntur eftir að komast í sund og fórum við á föstudagskvöldið í Laugardals laugina og síðan keyptum við okkur ís og heimsóttum Siggu Dögg og síðan heim að sofa. -Laugardagurinn; vöknuðum snemma fengum okkur morgunverð og hittum Siggu Dögg fengum okkur kaffi á te og kaffi og fórum síðan öll í sund árbæjarlaugina, og keyrðum við síðan hana í þjóðarbókhlöðuna en við fórum síðan í Keflavík, ég og Marel fórum heim til Mömmu hún var að halda aðeins uppá afmælið, fórum síðan feðgarnir á settum tíma í Rvk og áttum ágæta kvöldstund. -Sunnudagur; vöknuðum líka snemma þá og hittum Siggu Dögg, fengum okkur kaffi á Sandholt bakarí cafe ekki vorum við nú nógu ánægð með þjónustuna þar, frekar slow og skilningslítil, nóg um það Sigga fór heim þurfti að fara að læra en við Marel fórum til Kef, ég og Íris að fara í fermingarveislu og börnin voru heima Eva og Marel. Þurftum að rjúka úr veislunni þar sem að ég varð að vera kominn í Rvk fyrir 18:00. og Íris að fara að vinna. Ég fór á bílnum og var kominn á réttum tíma, tók til hjá mér um kvöldið, skipti um á rúmunum og þurrkaði aðeins af, horfði á sjónvarpið og fór síðan að sofa. Dagur 283 # 79 dagar eftir Mánudagur 7. Mars Heil vika Fór snemma í Kef byrjaði á að fara heim og svo í ræktina, síðan heim til mömmu og aftur til Írisar og þaðan að vinna var að vinna til um kl 14:30 náði þá í Marel á æfingu og síðan á körfubolta æfingu en þar sem að það var engin þjálfari þá var þessi æfing soldið laus í reipunum og reyndum við foreldrarnir að stjórna henni. Eftir æfinguna fórum við heim og fengum okkur að drekka síðan keyrði ég Evu til afa síns og síðan fór ég í bæinn........var kominn þangað um 17:15 sínist að ég megi leggja aðeins seinna af stað í Rvk, en samt er fínt að hafa vaðið fyrir neðan sig. Síðan fór ég á fundinn um kvöldið og heim að sofa Dagur 282 # 80 dagar eftir Sunnudagurinn 6. Mars Fermingardagur Evu og afmæli Guðrúnar systur Fór snemma í Kef ætlaði á æfingu en það opnaði ekki fyrr en kl 9 þannig að þá yrði ég allt of seinn í kirkjuna, fórum að hlaupa ég og Marel hann dugði einn hring en ég 4 fleiri, hann var orðinn pirraður og fórum við heim, Hann fór að keppa í samkaupsmótinu en ég fór að undirbúa mig til að fara í kirkjuna, pabbi kom til okkar og skutluðum við Marel og Garðari upp í Heiðarskóla þar sem að hann var að keppa og Garðar að dæma. Eftir athöfnina sem var mjög falleg og fór vel framm þá fórum við heim og fengum okkur kaffi, síðan var farið í myndartöku og aftur heim. Um daginn komu nokkrir gestir, en ég þurfti að leggja fyrr af stað, skutlaði Siggu heim og fór síðan sjálfur heim. Um kvöldið var námskeið og síðan kom Torfi um kl 9:00 og stoppaði í eina tvo tíma, sýndi mér allar myndirnar sínar sem hann hafði tekið, meiriháttar flottar hjá honum. Hann fór síðan heim og ég að sofa, sofnaði yfir 60 mínútum. Dagur 281 # 79agar eftir Laugardagur 5. Mars Fermingarveisla Evu. Fór heim og síðan á Soho að klára heita réttinn og fermigartertuna, síðan var farið heim og fór í sturtu og gerði mig klárann fyrir veisluna. Í veislunni var flestir ættingjar mínir mættir og var virkilega gaman að hitta þá alla. Ég fékk leyfi til að vera kominn í hús um kl 20 þannig að ég lagði ekki af stað fyrr en um kl 19 í bæinn aftur. Var þessi fermingardagur hennar Evu virkilega skemmtilegur og fannst mér hún skemmta sér alveg konunglega. Dagur 280 # 80 dagar eftir Föstudagur 4. Mars 2005. Undirbúngur fyrir ferminguna hennar Evu. Fór í vinnu og gerði fermingartertuna hennar, síðan afgreiddi ég hádegið eins og vera ber, dagurinn fór síðan í það að undirbúa fyrir kvöldið og helgina. Skrítið að vera byrjaður að vinna svona aftur, en er loksins að komast í gang. Marel fór með mér í Rvk fékk sér að borða og fór í sturtu, eftri kvöldmat fórum við svo aftur í Kef til mömmu og pabba fengum vi klippingu og vorum hjá mömmu til kl 9:30 en þá þurfti ég að drífa mig aftur í bæinn..sofnaði um leið og ég lagðist á koddann Dagur 279 # 81 dagar eftir Fimmtudagur 3. Mars 2005. Met hádegi í langan tíma Keyrði suður í morgun, fór ekki beint að vinna, keyrði Marel í skólann og fór síðan að vinna, Íris fór í bæinn að versla. Brjálað var að gera í hádeginu eða það besta í langan tíma. Um kl 15 þurfti ég að fara til tannlæknis, eftir það fór ég með Írisi og Marel að skoða salinn sem ferminginn á að vera í síðan heim og með vini mínum í Rvk. Eftir dinner horfði ég á sjónvarpið fór síðan að hlaupa, hljóp frá laugarteginum í gegnum laugardalinn og tók góðan hring á 25.45 mín gaman að taka þennan hring nokkrum sinnum og sjá hvort að maður nær ekki að massa tímann. Þegar heim var komið, fékk mér í gogginn, pikkaði á tölvuna og síðan að lesa og horfa á sjónvarpið, var kominn uppí fyrir kl 22:30 Dagur 278 # 82 dagar eftir Miðvikudagur 2. Mars 2005. Vinnudagur no2 Kunningi minn á Verndinni skutlaði mér til kef, fór beint í ræktina þar sem að þar var enginn vaknaður að sjá, heima þegar ég labbaði þar frammhjá. Tók hrikalega á, gaman og er ég mjög uppmeð mér hvað ég fékk og fæ frábærar móttökur frá öllum og enginn feiminn við mig eða neitt. Fór svo að vinna og var að til kl 15+ fór þá með Marel á æfingu, síðan heim að sísla með Írisi og krökkunum, Fékk bílinn til Rvk. Eftir dinner fór ég að hitta Siggu ætlaði að hitta Torfa líka en var ekki með nýja gsm númerið hans, hringdi heim til hanns en það svaraði ekki. Við Sigga fórum á Vegamót síðan að runta keyptum okkur ís, var kominn heim um kl 10, fór senmma uppí rúm, las í samr. við guð no 3 og fór síðan að sofa. Dagur 277 # 83 dagar eftir Þriðjudagur 1. Mars 2005. Fyrsti vinnudagurinn Hitti Siggu Dögg um morguninn þar sem, hún var enn með símann minn, fékk svo lánaðan annan síma frá henni, þar sem að hún var ekki búinn að koma öllum símanúmerunum yfir í sinn síma. Fengum okkur kaffi á te og kaffi, keyrði hana síðan í skólann og ég fór í Keflavík að vinna. Skrítið var að koma á Soho aftur en samt gekk það nú bara mjög vel, reyndar ekki mikið að gera en sennilega allir ánægðir sem komu. Um kl 15: fór í í ræktina en þar sem að ég var ekki búinn að áætla hvað það tæki langan tíma að labba niðureftir þá var ég ekki byrjaður fyrr en kl 15:30 og gat bara verið í klst, fór þá með félaganum til Rvk, vorum komnir um kl 17:15 á verndina og var ég þar til kl 7 þá kom Íris og sótti mig og ég skutlaði henni á Bingó, fór svo í heimsókn til pabba og var þar í rúma 2 tíma fór þá að ná í Siggu Dögg og fór aðeins að rúnta með henni, hún tók svo bílinn og náði í mömmu sína, en ég fór að pikka inn í tölvuna og síðan að sofa..........

Febrúar

Dagur 276 # 84 dagar eftir Mánudagur 28. Febrúar 2005. Fyrsti heili dagurinn Fékk far með einum kunningja til Keflavíkur, fór beint til Írisar og krakkanna, þau voru að fara í skólann þegar ég kom en Marel fór í fangið á mér og vildi ekki sleppa,,hann var síðan með mér allan daginn. Við fórum til mömmu og pabba stoppuðum þar í smá stund fórum síðan á Soho þar komu Íris Þrastar, Ásthildur, Ægir, Siggi, Garðar og Arnór spjölluðum saman og síðan fór ég heim með Írisi og var nóg að gera með krökkunum þann daginn. Ég fékk lánaðan bílinn hjá Írisi og fór í bæinn, hitti Siggu Dögg um kvöldið og bauð hún mér uppá sushi , fór síðan á AA fund hitti þar Óla Sól, ásamt fullt af öðru fólki sem ég kannaðist við. Eftir fundinn fór ég beint á Verndina og að sofa, sofnaði hratt og örugglega......enda strembinn svona fyrsti hálf frjálsi dagurinn Dagur 275 # 85 dagar eftir Sunnudagur 27. Febrúar 2005. Svo til frjáls Vaknaði mjög snemma fékk mér morgunverð og byrjaði að huga að hádegismatnum, síðan ætaði ég að fara að æfa en þar sem ég spjallaði svo mikið um morguninn og drakk allt of mikið kaffi og átti eftir að pakka smávegis niður þá ákvað ég frekar að pakka niður og og ganga frá eftir mig. Kláraði lunchinn, allir frekar sáttir, Íris kom rétt fyrir lunch og beið á meðan ég mátti fara. Þegar ég var búinn að koma öllu fyrir í bílnum þá biðum við þar til að klukkan yrði 02, á slaginu 2 lögðum við af stað ég fékk að keyra, alveg eins og að maður hafi engu gleymt. Þegar til Reykjavíkur var komið þá hittum við Siggu Dögg og fengum okkur með henni kaffi og síðan skutlaði Íris mér á Verndina, um kvöldið kom ég mér fyrir og spjallaði aðeins við kunningjana frá Bryggjunni. Sofnaði aðeins frá kl 07-09 vaknaði þá og kláraði að ganga frá dótinu “svo til” og horfði síðan á sjónvarpið og fór svo að sofa.. Ég get ekki sagt annað en að þetta eru mikil viðbrygði frá því sem ég hef verið í sl 9 mánuði Dagur 272/3/4 # 88-86 dagar eftir Fimmtudagur-laugardags 24-26. Febrúar 2005. Seinustu dagar á bryggjunni Þessir seinusta daga hér á kvíabryggju eru búnir að vera frekar skrautlegir, brjáluð vinna alla daga og höfum við ekki gert mikið meira en að vinna, borða og sofa. Hlakka vissulega til að geta farið á sunnudag en Íris ætlar að koma að sækja mig.......það er lítið annað að gera en bara að bíða. Hlakka mikið til að hitta alla ættingjana og vini. Dagur 268/9/70/71# 92/91/90/89 dagar eftir Sunnud-miðvikud 20-23. Febrúar 2005. Geðveik vinna og búinn með 9.mán / 3mán eftir Hef ekki unnið svona mikið síðan að ég kom hingað, alla daga hef ég verið að vinna frammá kvöld, þar til í dag að þá náði ég að vera búinn fyrir kl 17:30 . Það er greinilega vertíð og bíða eftir okkur balar alla daga og náum við ekki að klára það sem fyrir okkur er lagt,,en svona ætti þetta að vera til framm yfir helgi og jafnvel lengur, en ég þarf nú ekki að hafa miklar áhyggjur af því þar sem að ég fer á Verndina á sunnudaginn. Ekki hef ég gert nú mikið meira en að vinna þessa dagana, fór reyndar í gærkvöldi og fyrir kvölmat í kvöld að hlaupa enda er veðrið til þess, búið að vera rosalega fallegt og gott veður síðan um helgina.. Er búinn að fá nokkrar hringingar, mamma, Íris, Pabbi, Raggý og síðan hringdi ég í Evu og Marel í gærkvöldi..Maður hefur verið það þreyttur á kvöldin að maður hefur steinsofnað svo til um leið og að maður lagðist á koddann, en náði þó að lesa nokkrar síður í bókinni góðu og er ég á fullu nú að lesa um háþróaðar verur og hvaðan allt þetta kemur.. Er að bíða eftir að einhver hringi í mig í kvöld og síðan fer ég að sofa............19:33 Dagur 267# 93 dagar eftir Laugardagur 19. Febrúar 2005. Biluð vinna í dag Ekki hef ég neitt verið að láta þetta með dóminn pirra mig, svona eru hlutirnir og ekki til neins að vera pirra sig á því. Örugt er að þetta átti bara að fara svona og verður mér öruglega bara til góðs, fer þá að undirbúa hvernig ég ætla mér að plana tímann sem ég er þar, vinna, ræktin, fjölskildan og ég. Ég fór að vinna um kl 07:00 og tókum við 69. bala í dag og gekk það rosalega vel, síðan að ég kom höfum við aldrei tekið jafnmikið á einum degi. Var að til kl 20:00 en þá er ég líka búinn að skera helling niður fyrir morgundaginn og jafnvel mánudaginn, en við ætlum nokkrir að beita aðeins á morgun. En ég þarf nú samt að skera smá meiri beitu niður fyrir okkur. Þegar í kom inn í hádeginu í dag þá hringdi ég í mömmu og talaði aðeins við Raggý systir líka allt gott að frétta hjá þeim....kvöldið fór nú í að gera skýrslu eftir daginn, pikka aðeins í tölvuna og síðan að gera mest lítið...........slappa af eftir mikla vinnu í dag. Dagur 266 # 94 dagar eftir Föstudagur 18. Febrúar 2005. Hljóta að koma fréttir í dag “Frjáls eða allt við það sama”? Jú fréttirnar komu um kl 15:00 og verð ég að halda áfram eins og búist var við, klára út vikuna hérna og fer á verndina í á sunnudag eftir viku. Annars var dagurinn þannig ég var að sýsla allan daginn, fór svo að skera beitu seinnipartinn þar sem við eigum von á um 70 bölum í kvöld og þurfum að klára megnið ef ekki allt á morgun, var að til kl 21: fór þá loksins inn, í bað og þessháttar hringdi í Írisi þar sem hún hafði hringt talaði aðeins við Evu mína, hennig gekk svona rosalega vel í skólanum með 9,6 í meðaleiknkunn meiriháttar stoltur af henni. Haffi hringdi einnig frá Norge og spjölluðum við ágætlega saman, en hann er að gera tilboð í 1000-1500 manna festival sem á að vera í byrjun júní í bænum þeirra.. Dagur 264/5 # 96/5 dagar eftir Miðvikudagur/fimmtudagur 16/17. Febrúar 2005. Engar fréttir hvorguan daginn Báðir dagarnir fóru í það að bíða efti að fá svar frá Ásbirni varðandi Dóms og kirkjumála. En svörin sem hann fékk voru þau að svarið yrði sent í pósti, hvortugan daginn kom það, það hlítur að koma á morgun föstudag. Annars í gær var töluverð vinna, sem við gátum ekki klárað svo að smá hluti af henni færðist yfir á daginn í dag. Þurfti að hringja í mitt fólk og láta vita af engum fréttum, svona er þetta nú bara..en einhvernvegin þá geri ég mér ekki miklar vonir með að þetta verði mér í hag frá 1-10 =2. allavega byrjaði ég á að grunna mynd, keypti skyr og popp þannig að ég er ekki neitt á leiðinni burtu fyrr en eftir viku eða þarnæsta sunnudag 27/2. Hringdi í pabba en þau svöruð ekki hvorgan daginn, um kvöldið var svo mikil notkun á símanum að alltaf þegar ég ætlaði að nota hann þá var hann upptekinn..gleymdi því svo.. Hef tekið mér pásu í salnum, ekki neitt æft síðan á mánudag, búinn að vera hálf skrítinn í maganum, held að ég sé með eitthvað í ristlinum, hann er aumur, og fann það rétt áðan þegar ég fékk mér ost að ca 2 tímum seinna fann ég til í honum sem að mig minnir geti verið eitthvað sem tengist ost og ristli, en það er í lagi ef að ég borða skyr,,hef síðan hvílt mig alveg á fæðubótarefnunum þessa viku..geri ráð fyrir að fara á morgun að æfa og jafnvel þá bara maga, brennsla og teigja.........22:02 Dagur 262/3 # 98/97 dagar eftir Mánudagur og þriðjudagur 14/15. Febrúar 2005. Þokkaleg vinna og spenna yfir kærunni Vaknaði báða dagana um kl 7 fór að vinna og var að til kl 12/13 fór þá inn á mánudaginn tók ég rosa brennslu æfingu en gaf mér frí á þriðjudeginum, enda held ég alveg kominn tími til að fara að slappa aðeins af, er aðeins aumur í höndunum og er búinn að vera hálf skrítinn í maganum, ætla að slappa bara af í nokkra daga og sjá svo til. Heyrði í öllum keflavíkur börnunum mínum í gær, meira að segja Siggu, allt gott að frétta af þeim, Eva spennt yfir að fara að fermast og nóg að gera hjá hinum. Íris er á fullu í ferm.undirb. og síðan með Soho og krakkana, nóg að gera hjá henni. Ekki heyrði ég neitt frá þessari blessaðri nefnd sem hefur með málið mitt að fjalla, finnst mér það frekar skrítið að það skuli ekki vera búið að hafa samband og láta mig vita, hringdi í Ásbjörn en hann svaraði engum skilaboðum...í stöðunni fannst mér lágmark að hringja og segja eitthvað, eitthvað hlítur að hafa komið í ljós, ef að hann hefur ekki getað hringt, láta þá einhvern annan hringja í staðinn..það þíðir í sjálfus ér ekki að pirrast yfir þessu, en fyrir mig og mína skiptir þetta máli, dagsetning sem búið er að bíða eftir síðan í nóvember, frekar fúlt, hlítur að skírast eitthvað á morgun. Búist er við óveðri í nótt og á morgun, þannig að ef að ég losna á morgun efast ég um að nokkur geti komið og sott mig. Annars þurfum við að beita 40 bala á morgun tókum 32 í dag þannig að það er ágætis vinna þó að veðrið sé slæmt... Annars önnur merkileg frétt. Ég fékk bréf í gær frá konu ári eldir en ég, bjó í keflavík býr nú í usa, ekki nánar útí það, en hún las viðtalið við mig í víkurfréttum sem var í desember blaðinu og fannst sig knúin til að skrifa mér nokkrar línur..meiriháttar gaman að fá svona bréf, svaraði því til baka og fer það í póst á morgun......ætla að skella mér uppí rúm lesa aðeins og fara svo að sofa...hlakka til að vakna á morgun..líður vel Dagur 260-261 # 100/99 dagar eftir Laugardagur og sunnudagur 12/13. Febrúar 2005. Ath 100 dagar eftir = 3 mán og 10 dagar Hringdi í Marel og tékkaði á hvernig gengi með afmælið, hann var svo spenntur að hann gat ekki talað við mig, talaði betur við hann svo um kvöldið. ‘Eg notaði helgina til að mála og málaði 2 stórar myndir af landslagi, tókust bara þokkalega, góðir litir. Veðrið er búið að vera hálf leiðinlegt og er ég bara búinn að vera að hanga, lesa, æfa og mála. Fínt er að maður er kominn yfir 100 daga niðurtalninguna, nú er bara að sjá hvað gerist eftir helgi. Dagur 259 # 101 dagar eftir Föstudagur 11. Febrúar 2005. Litli drengurinn minn 6 ára í dag. Í gærkvöldi komu 2 bátar með bala og beittum við þá í morgun. Var búinn að vinna um hádegisbilið. Hringdi í Marel um kl 09. og óskaði honum til hamingju með daginn, spjallaði að eins við hann og var hann mjög spenntur yfir degiunum. Eftir lunch lagði ég mig og fór svo að æfa eftir kaffi, framm að kvöldmat. Eftir dinner hringdi mamma og var allt í góðu að frétta hjá henni. Bauðst til að sækja mig á miðvikudaginn losni ég þá? Hver veit. Um kvöldið var horft á Idolið og loksins gátum við sett í vél og var þvegið alveg stanslaust allt kvöldið enda var fataskápurinn minn orðinn tómur hef ekki þvegið af mér í 2 vikur allar nærbuxur, sokkar og þessháttar orðið skítugt.. Á morgun þarf ég að laga smá rauðkál fyrir Guðbjörgu og síðan ætla ég mér að klára eða allavega að halda áfram með myndina sem ég var byrjaður á. Ætla nú að fara uppí rúm að lesa samræðurnar og fara svo að sofa.00:27 Dagur 257/8 # 103/2 dagar eftir Miðvikudagur/Fimmtudagur 9-10 Febrúar 2005. Kláraði rammana loksins Enginn vinna þessa dagana, búið að vera frekar leiðinlegt veður þannig að ekkert hefur verið róið. Byrjaði aftur að mála í dag kláraði fyrstu stóru myndina mína og kláraði aðra sem ég var ekki alveg búin með síðan í des. Tókst bara ágætlega með þær báðar byrjaði á annari stórri sem ég ætla að klára um helgina. Dagarnir voru og eru frekar langir að líða en þegar maður hefur eitthvað við að dunda þá hjálpar það mikið til. Heyrði í Raggý systir. Írisi, Evu og Marel. Dagur 256 # 104 dagar eftir Þriðjudagur 8 Febrúar 2005. Láta daginn líða Vaknaði um kl 09:30 fór þá í sturtu, fékk mér morgunmat og síðan að þvo nokkra bala sem ég þarf að merkja, eftir það fixaði ég aðeins í römmunum og svo að lesa, skirfa og bíða eftir lunch. Eftir lunch hélt ég áfram í römmunum kláraði þá að mér finnst ætla að reyna að setja eitthvað í þá á morgun, þreif nokkra bala og gerði svona mest lítið. Eftir smá sjónvarpsgláp um daginn, fór ég í tölvuna að gera eitthvað, finna leyninúmerið fyrir símann á Soho fann það, skrifaði aðeins og fékk umsóknina á verndina, best að fylla hana út svo að það verði klárt, geri nú ekki mikið ráð fyrir að mér verði hleypt eitthvað fyrr út það er að segja að þeir uni dómi fang.m.st. Frétti að í fyrramálið ætlar einn bátur að taka 30 bala og síðan alla daga þá 30 þegar hægt er að róa, þannig að það ætti að verða gott að gera hjá okkur ef að það gerist. >Hringdi ekki neitt í dag né kvöld, ætti nú aðeins að láta vita af mér á morgun, en eftir viku ætti ég að vera kominn með úrskurðinn. 00:29... Dagur 255 # 105 dagar eftir Mánudagur 7 Febrúar 2005. Smá vinna í dag >Fór um kl 07:00 að vinna var að til kl 11; fór þá inn. Eftir lunch lagði ég mig og fór efti kaffi að æfa tók fína brennsluæfingu, síðan í dinner. Íris hrringdi talaði aðeins við hana, Evu og Marel hann er alltaf að rukka mig um kastala mynd sem ég á að teikna fyrir hann. Horfði síðan á sjónvarpið fékk mér popp og fór síðan að sofa.. nákvæmlega ekki neitt að gerast.. Dagur 254 # 106 dagar eftir Sunnudagur 6 Febrúar 2005. Dagarnir líða frekar hægt núna. >Vaknaði í morgunmat og spjall, um kl 10:00 fór að æfa og var að til kl 12. fór þá í lunch. Eftir lunch fór ég að sísla í römmunum og þessháttar. Eftir dinner horfði ég á sjónvarpið og fór síðan að sofa.. Dagur 249-253 # 111-107 dagar eftir Þriðjudagur-Laugardags 1-5 Febrúar 2005. Nákvæmlega ekki neitt að gerast...... >Það var vinna mánud-miðvikudag og föstudag, aðra daga slappaði maður af.. Sleppti æfingu á mánudag og þriðjudag en tók því ennbetur á hina dagana, er búinn að vera með einhver eymsli í vinstri handleggnum, búið að vera soldið lengi vona að það fari að lagast.. Ekki er ég enn byrjaður að mála aftur en hef í staðinn notað tímann til að klára ramma fyrir myndirnar og hefur það bara gengið ágætlega með góðri hjálp..Ekki fékk ég nú fleiri heimsóknir í vikunni en þessar á sunnudag og mánudag enda duga þær mér lengi.. Eitthvað finnst mér þetta vera að styttast núna en ég fæ svar þann fimmtánda frá Dóms- og kirkju og ef að það er ekki jákvætt fyrir mig fer ég allavega á Verndina í lok mánaðarins eða þann 27..að öllum líkindum..Nú er bara að láta dagana líða...eins vel og hægt er. Hef verið að lesa helling í samr. við guð no 3 er það svo rosalega róttækar hugmyndir að ég þori varla að hafa nokkuð eftir því hér..á samt öruglega eftir að missa nokkrar vísdóms sprengjur hér inn.

Janúar

Dagur 248 # 112 dagar eftir Mánudagur 31 Janúar 2005. Íris og Marel komu í dag >Fór snemma að vinna og var á fullu til að vera búinn að öllu áður en að þau kæmu. Náði því og komu þau svo um kl 11:00 Marel var á fullu við vorum heldur betur ánægðir feðgarnir að sjá hvorn annan, og átti alls ekki að slá slöku við, fórum við 2 að gefa kindunum síðan að skoða dýrin, naggrísina og kanínurnar, teikna, í leik og í drekkutímann og svo var allt í einu tími til að fara heim..Lítið fór fyrir Írisi hún slappaði bara af inni í herbergi meðan við strákarnir lékum okkur.. virkiklega gaman að fá þau í dag enda kominn tæpir tveir mánuðir síðan að ég sá þau. Kvöldið fór í sjónvarpsgláp og að slappa af..sleppti alveg æfingu í dag.. Dagur 242-6# 118-114 dagar eftir Janúar 25-29Janúar 2005. Heil vika >Þessar seinustu vikur eru nú frekar keimlíkar og ekki mikið um að vera er búinn að vera duglegur í ræktinni,. Er að passa betur uppá mataræðið og þessháttar.. Það er búin að vera ágæt vinna hjá okkur framm að þessu en þó ekki á þriðjudag og föstudag og geri ekki ráð fyrir mikilli vinnu í byrjun næstu viku þar sem að það er búið að vera frekar brjálað veður. Er loksins búinn með kassana/hillurnar fyrir minatorana mína einnig að gera klára lista til að gera fleiri ramma fyrir myndirnar mínar. Í vikunni heyrði ég í Írisi, Mömmu, Marel, Evu, Hjördísi frænku og Sigga kokkanema. ........ Á föstudaginn hringdi ég loks í Dóms og kirkjumálaráðuneytið til að vita hvort að það ætti nú ekki að fara að taka málið fyrir..fékk þau svör að það hefði verið gert á þriðjudaginn en enginn vissi svarið, hringdi í Ásbjörn en hann var farinn til útlanda, þannig að ég bað þau þar að reyna að ath.hvort að það væri nú ekki bréf frá þeim stílað á hann, það var ekki svo að þau hringdu þangað og fengu þau svör að málið hefði jú verið tekið fyrir en vantaði enn frekari gögn og að það yrði tekið fyrir aftur þann 15/02. spurning hvað gerist þá og hvaða gögn getur þeim vantað nú. “Ég verð að bíða bara rólegur í þessar tvær vikur” Dagur 241 # 119 dagar eftir Mánudagur Janúar 24. Janúar 2005. Íris á afmæli í dag >Fór að vinna var að vinna til kl 13:13 lagði mig þá og fór svo að æfa í tæpa tvo tíma, í hádeginu hringdi ég fyrir Írisi í kjötvinsluna Esju og pantað i fyrir hana lambakjöt til að setja á matseðilinn á Soho. Hringdi í Írisi en hún var ekki heima, hún hringdi í mig um kvöldið og hafði nú ekki haldið neitt uppá afmælið sitt um daginn fór í staðinn heim til tengdó og fékk smá kaffi þar.......Ekki fengum við balana eða beituna sem ég átti von á í dag þannig að það kemur sennilega bara á morgun ef að veðrið fer að lagast en það er búið að vera brjálað rok og rigning í allan dag og er snjórinn alveg að fara. Þetta þíðir það að ég get sofið út á morgun og stússast helling í því sem að ég á eftir að gera..............vona að ég fari nú að fá svar frá þessari nefnd... Gerði mest lítið um kvöldið, sjónvarpið og síðan að pikka á tölvuna..fer síðan að lesa og að sofa..er búinn að vera að lesa í samr. við guð no 3 og á eg eftir að setja niður nokkur mjög merkilegar skoðanir á þessa síðu síðar.. Raggý systir og Stjáni ætla að kíkja á sunnudaginn, er að spá í að athuga hvort að Marel megi koma líka með, Eva er á æfingum á sunnudögum sem ég reikna ekki með að hún vilji sleppa..ath þetta í vikunni Dagur 240 # 120 dagar eftir Sunnudagur 23. Janúar 2005. Búinn með 8 mánuði í dag >Svaf út en vaknaði þó um kl 07:30 fékk mér morgunmat og las blöðin fór síðan aftur uppí og horfði á sjónvarpið, síðan sofnaði ég aðeins og fór svo í lunch, eftir mat eyddi ég deginum í það að horfa á sjónvarpðið sýsla í tölvunni og slappa af..tók enga æfingu í dag enda er í lagi að taka sér einn dag í viku til að slappa af.. Guðrún systir skírði litla drenginn sinn í dag , fékk hann það fallega nafn Elvar Örn , mjög fallegt og heyrði ég að eins í henni og Raggý, hringdi svo í Írisi um kvöldið en hún á afmæli á morgun,..horfði á dagskránna í sjónvarpinu um kvöldið og fór svo að sofa.. Dagur 238-9 # 122-1 dagar eftir Föstudagur og laugardagur 21-22. Janúar 2005. Gaui tengdó á afmæli þann 21 >Vaknaði um kl 06:45 fékk mér morgunverð fór svo að vinna og síðan eftir lunch að æfa tók mér góðann tíma í það, síðan fóru nú þessir dagar í það að slappa af og horfa á sjónvarpið Dagur 237 # 123 dagar eftir Fimmtudagur 20. Janúar 2005. Enginn vinna í dag >Vaknaði um kl 07:30 í morgunmat, fór svo að vinna við hillurnar, lagði mig síðan fyrir matinn, eftir mat hélt ég áfram með hillurnar fór svo að æfa að sjálfsögðu og síðan að sísla, beið eftir að bátarnir kæmu með balana, tók út beytu það verður víst vinna á morgun.. Hrigndi í sýslumanninn í kef , Ásbjörn lögfr og síðan seinnipartinn í Írisi heyrði þá í Evu minni, Marel og Garðari..allt í góðu hjá þeim ölla að undirbúa sig til að fara á leikinn í evrópukeppninni í körfu...er að fara að sofa núna þar sem ég þarf að vinna á morgun, þori varla að kíkja á sjónvarpið til að sjá hvernig leikurinn fór..........23:01 Dagur 236 # 124 dagar eftir Miðvikudagur 19. Janúar 2005. HLÍTUR AÐ FARA AÐ LÍÐA AÐ FÁ EITTHVAÐ SVAR! >Vann, æfði og hélt áfram að sísla með hillurnar fyrir flöskurnar. Skrifaði bréf til Guðrúnar og Haffa hélt að ég væri löngu búinn að því svo að ég leitaði að því í tölvunni en fann það ekki,,handskrifaði það svona til tilbreytingar Heyrði aðeins í Betu frænku allt gott að frétta hjá henni, Ég hringdi svo til Ægis Emils en hann á afmæli dag, hann var farin að vinna svo að ég skilaði bara kveðju. Dagur 235 # 125 dagar eftir Þriðjudagur 18. Janúar 2005. Guðrún systir átti dreng í dag Fór ú tum kl 07:15 var búinn að vinna um kl 09:30 fór þá inn horfði á Operu og síðan í ræktina, eftir lunch hringdi ég í mömmu og fékk fréttirnar með Guðrúnu allt gekk vel hann var 53cm og 17,5 merkur. Gaman að fá einn frændann í hópinn. Fór ég að sýsla við skápana sem ég ætla að smíða, fór með þá út í skúr til að bora fyrir hillum, en fékk þennan niðurgang, rétt náði á klóstið, fór svo í sturtu. Frétti að tveir piltar væru á leiðinni í heimsókn til mín, Úlli og Elías frændi, stoppuðu í rúman klukkutíma, fínt spjall, fór svo að klára að bora, var orðinn fínn í maganum. Hringdi í Írisi og talaði helling við hana sem og Marel en hann hafði frá helling að segja.. Kláraði að bora fór þá í dinner, síðan komu nokkrir balar um kvöldið þannig að við verðum að vinna á morgun.. Las aðeins í bókinni Samr. við guð no 3, kemur alltaf jafn mikið á óvart, en samt sumt sem maður hafði áliktað að væri þannig og fæ þá staðfestingu frá öðrum sem telur svo vera. Ætla að fara upp í rúm núna annað hvort að lesa eða að horfa á sjónvarpið.........21:57 Dagur 234 # 126 dagar eftir Mánudagur 17. Janúar 2005. Vinna Fór um kl 07 að skera beitu var að til kl 14:00 hringdi þá í Írisi til að láta hana vita að Gulli kokkur ætil að hafa samband við hana, náði ekki á hana lagði inn skilaboð..Fór að æfa eftir kaffi framm að kvölmat í tæpa tvo tíma, langaði ekki í matinn fékk mér protein shake og síðan horfði ég á sjónvarpið, Mamma og Raggý hringdu í kvöld og á að skera Guðrúnu systir á morgun um kl 10.00.......tók timbrið upp úr kössunum og fór yfir hvað væri hvað. Skrifað aðeins og fór svo að sofa 23:01 Dagur 233 # 127 dagar eftir Sunnudagur 16. Janúar 2005. Slappa af Vaknaði ekki fyrr en um kl 11:15 eftir að hafa sofnað snemma í gær og síðan upp í nótt um kl 03 fór þá í náttföt og að sofa. Hringdi fyrir hádegi í pabba þar sem að hann hafði lagt inn skilaboð í gær, hringdi síðan í Hildigunni sistir spjallaði heilllengi við hana fór svo í mat og horfði á dvd. Tók út beitu eftir kvöldmat og hringdi í Axel Jóns en hann hafði lagt inn skilaboð, síðan í Gulla kokk til að ath hvort að hann gæti ekki hjálpað eitthvað til á Soho síðan talaði ég við Írisi og Sigga á Soho nóg að gera þar á næstunni....kvöldið notaði ég í að horfa á tw enda finnst mér besta dagskráin á sunnudögum.. Dagur 229-32 # 131-128 dagar eftir Miðvikudagur-Laugard 12-15. Janúar 2005. Nýr og fallegur dagur, sá besti sem ég fæ í dag Þessir dagar runnu bókstafslega í eitt, mikil vinna alla dagana meira að sega á laugardeginum, annað sem bar á góma var að Guðrún sistir er ekki enn búinn að eiga, Fékk sendinguna frá Húsasmiðjunni. Óskar Kristjáns, Beta og Mamma hringdu á föstudaginn..fór ekki í ræktina á laugardaginn alla aðra daga. Jóhanna booker sendi mér bré og áritaða fallega dagbók sætt af henni að muna svona eftir mér.......annars bara mest lítið að gera, eins og ég hef sagt áður er komin smá leiði í mig. Dagur 228 # 132 dagar eftir þriðjudagur 11. Janúar 2005. Látum tímann líða Leyfði mér að sofa út, eftir lunch fór í að æfa og síðan að vesenast í bölum sem komu, um 50 stykki sem við þurfum að klára fyrir helgi. Í dag fékk ég skemmtilegt bréf frá Hafsteini og Guðrúnu í Noregi en þau komu nú aðeins til mín í byrjun jan. Virkilega gott bréf, var ég glaður að sjá að í bréfi hennar, en hún skrifaði bréfið, að bækurnar samræður við guð hjálpuðu henni að koma sér á rétta braut eftir að hafa verið óánægð í vinnunni, léleg laun svik og pretti, gengið semsagt mjög illa á tímabili en var þá kom “nágrannakona” ekki vinkona, heldur kona í næsta húsi sem uppúr þurru lánaði henni fyrstu bókina og síðan hefur hún eins og ég verið heltekin af þeim. En hún sagði mér í bréfinu að þessar bækur hefðu komið henni til að snúa við sinni eigin eymd í það sem hún vildi fá útúr lífinu, “ef þú gerir það ekki sjálfur, gerir enginn það fyrir þig”..ég er þá ekki bara einn í þessum samræðum.. jú ég verð að segja meðan að ég er að lesa bók no 3 að þessar bækur hræra upp í kollinum á manni og þori ég ekki að ræða einu sinni um innihaldið við aðra að fyrrabragði, þar sem ég treysti mér ekki strax í að standa í einhverjum rökræðum um þessi einföldu mál um tilgang okkar hérna.. Hvernig kirkjan er búinn að afbaka þá hugmynd um guð og þá almennu trú sem boðuð er. Hvað er rétt og rangt, merkilegt að hvernig við getum sagt að eitthvað sé bannað og ekki rétt þegar í næsta landi 2 km í burtu er með þau lög að það sé í lagi..Sjálfsmorð; td hvernig menn sem reykja og eru að þvi komnir að drepast eftir 10-30 ára reykingar og læknirinn eða aðstandandi vill hjálpa viðkomandi að drepa sig er það kallað mandráp en það sem raunverulega kom manninum í þessa aðstöðu “reykingarnar” er kallað viðskipti og þeir menn ekki sóttir til saka. Að maður sem kominn er að því að degja og þjáist gífurlega hafi ekki rétt á að fyrirfara sér og linna sínar þjáningar er óskiljanlegt, hverjum þóknast það að við þjáumst, höldum við að guð vilji frekar að við þjáumst en að við degjum hratt.. hvort er réttlætanlegra sjálfsmorð að reykja eða að taka inn rottueytur , bæði vitum við að það drepur en annað tekur aðeins lengri tíma..förum við þá ekki á sama stað hvort sem við drepum okkur með rottueytri eða tóbaki?..Guð refsar ekki hann elskar, þú ert þinn guð... En í næstu setningu um dauðsfall, þegar einhver ferst samstundis í slysi, segjum við gott að hann þjáðist ekki. Er semsagt betra að þjást af sjúkdómum sem leiða mann til dauða heldur en að þjást af slysförum sem geta leitt mann til dauða?.......... Verð að skrifa þeim bréf til baka með þakklæti fyrir bókina en hún sendi mér eintak af bókinni og viti menn hún notaði eina af uppskriftunum sem ég sendi henni áður en að ég fór inn.. Hringdi í Húsasmiðjuna og ætla þeir að senda mér pakkann á morgun, fékk í dag kveðju frá Tómasi á Búllunni, veit allavega að hann er á lífi... Einhvernveginn finnst mér dagurinn vera frekar lengi að líða, getur verið útaf því að það er lítil vinna, veðrið eða bara eitthvað, allavega þá er nóg vinna hjá okkur framm að helgi þannig að þessi vika verður búinn áður en að maður veit af.. Horfði á Íslenska þáttinn um kapphlaupið mikla, virkilega góð landkynning...... Er að skrifa núna og ætla að byrja á bréfi til Norge..aldrei að vita nema að maður fari þangað ef að búið verður að selja Soho þegar maður losnar..22:50 Dagur 227 # 133 dagar eftir Mánudagur 10. Janúar 2005. Kominn tími til að fara að koma sér heim....... Vaknaði um kl 05:45 fór þá að skera beitu, var búinn um kl 11; fór þá inn í sturtu og þessháttar, eftir lunch fór ég að lesa, hringdi í mömmu og Írisi fór síðan í kaffi og lesa meira, sofnaði og fór svo að borða, ekki mikið að gerast hjá mér í dag, nennti ekki á æfingu, var í stuði um morguninn en síðan ekki meir..vona að ég hafi kraft til þess á morgun. Sendi Siggu Dögg bréf með peningum til að kaupa afmælisgjöf handa Írisi einnig átti ég eftir að gefa henni afmælisgjöf. Finnst mér í fyrsta sinn, eiginlega síðan að ég kom inn að tíminn sé búinn að vera nógur, alveg kominn tími til að fara heim að gera eitthvað að viti, sennilega hefur það áhrif hvað þetta tekur langan tíma í réttarkerfinu að fá þennan úrskurð og líka það að maður er farinn að telja alvarlega niður, sem gerir öruglega tímann enn lengur að líða en ella..Á morgun verð ég að ná í Húsasmiðjuna í kef til að pressa á að fá efnið mitt fyrir helgi svo að ég geti byrjað að smíða og haldið áfram að mála.. Engin vinna er á morgun þar sem “Báran” kom ekki með balana sína í kvöld, þannig að ég get ekki látið ræsa strákana uppá það hvort að hann komi eða ekki, tökum þá bara í staðinn á miðvikudag.. Íris hringdi í kvöld og er Marel búinn að vera veikur í nótt, var orðinn hress en spurði hvort að ég færi nú ekki að fara að koma heim, sagði að ég kæmi þegar Eva fermdist, fannst það allt of langur tími..fannst mjög gott að tala við hann, hori á hverjum degi á myndina sem hann sendi mér í jólagjöf á almanakinu sem hann gerði og síðan á skjámyndina á tölvunni og finn hve rosaleg ég sakna hans.. Einnig hef ég til hliðar myndina af Evu og mér sem hún sendi mér um jólin, og hlakka til að geta kúrt hjá henni, það er að segja að henni finnist hún ekki orðin of stór til að kúra hjá pabba sínum..minnir nú að Sigga hafi kúrt hjá mér hingað til.....ætla að skrifa eitthvað meira fara svo að lesa, horfa á sjónvarpið og fara svo að sofa ........23:29 Dagur 226 # 134 dagar eftir Sunnudagur 9. Janúar 2005. Fallegt veður í dag Vaknaði um kl 05:45 fór þá að skera beitu og leisa flækjur, eftir það fór í smá brennsluæfingu og síðan í lunch, það var kjúklingur í matinn. Eftir lunch gerði ég mest lítið, tók aðeins til, fór síðan í smá snoker æfingu og síðan að lesa og skrifa. Tryggvi fór í dag á verndina, flott fyrir hann, góður drengur hann, ég á eftir að hitta hann aftur þegar ég fer þangað þá á hann eftir rúman mánuð. Hringdi í írisi um kvöldið en hún var búinn að vera með krakkana á körfuboltakeppnum allan daginn.. Kokkurinn okkar sendi Sigga kokkanema skilaboð um að hann kæmi ekki aftur, þannig að Soho er í miklum vandræðum núna..horfði síðan á sjónvarpið og fóra að sofa enda þarf ég að vakna snemma á morgun Dagur 225 # 135 dagar eftir Laugardagur 8. Janúar 2005. Engin heimsókn þessa helgi Fór í ræktina um kl 11, eftir lunch horfði ég á strandblak kvenna frá því í Ól í sumar, síðan í sturtu kaffi og tók smá æfingu í snoker..fór svo að skrifa, skrifaði bréf til Siggu Daggar og til Vals Ketils langt síðan að ég hef frétt af honum. Eftir dinner horfði ég á sjónvarpið hringdi í Írisi en Særún og Bjarni voru í heimsókn hjá henni talaði stutt við hana ætla að hringja bara aftur á morgun .Fékk hringingu að við þyrftum að beita í fyrramálið, tók út beitu, horfði á sjónvarpið, um miðnætti var ég orðin svo svangur aftur að ég fékk mér popp, sofnaði rúmlega 12:40 Dagur 223-4 # 137-6 dagar eftir Fimmtudagur/Föstud 6/7. Janúar 2005. Vinna aftur Vaknaði og fór að vinna, báða dagana, annars fór dagarnir í mest lítið, las, Hringdi í Hildigunni systir en hún á afmæli þann 6. fyrst var á talai go síðan svaraði hún ekki gleymdi að reyna enn aftur. Talaði við Sævar ðí Húsasmiðjunni í kef varðandi pöntunina mína er allt í gang. Hringdi í fitness sport og ath með box púða kostar hann 25.000 60 kg með hönskum..langar mig að kíla á það, en tími varla að láta hann hanga hérna og láta alla vera að þjösnast á honum.. J Lagði mig og fór í ræktina annan daginn, slappaði af hinn. Einhvernveginn eru þessir dagar smá þvíngaðir þar sem einn fer á sunnudaginn sem er hið besta mál fyrir hann og samgleðjumst við honum., annar fer eftir viku og er ein og að það sé smá spenna í loftinu vega þessa þá aðallega hjá honum er hann að lenda uppá kant við flesta og þessháttar held að húsið verði töluvert rólegra eftir að hann fer.. ungu strákarnir sem komu í haust og rétt fyirir jól eru mjög rólegir og finnst mér mjög gaman að sjá hvað þeir samlagast vel okkur eldri. Fínir til vinnu og til fyrirmyndar til allra staða.. Gaman verður að fylhast með hverjir koma í stað þessa sem eru að fara, ungir eða eldri,, þrír fara í þessum mánuði og ég og annar í þeim næsta.. Í gærkverldi var ég mest latur og horfði á sjónvarpið og náði svo loks að fara að sofa.....Íris hringdi um kvöldið ætlaði að hringja í hana aftur en gleymdi því. Talaði aðeins við Marel og sagði hann mér frá grílu og leppalúða sem hann sá á 13.brennunni í kef....... Dagur 222 # 138 dagar eftir Miðvikudagur 5. Janúar 2005. Þrif dagur Vaknaðiu um kl 8, engin vinna í dag en fékk mér morgunmat, las aðeins fór síðan að æfa og í lunch, eftir lunch tók ég til hjá mér þurkaði af skúraði og raðaði uppá nýtt í herberginu mínu. Meðan ég var að bíða eftir að gólfið þornaði hjá mér þá hringdi ég í mömmu, tékka á hvort að Guðrún væri kominn af stað, og hvort að hún væri ekki hætt við að flyja til Ísafjarðar......svo var nú ekki annars allt þokkalegt að frétta. Seinnipartinn kom Guðbjörn og tók flest alla balana gaf okkur konfekt, fór síðan inn horfði aðeins á sjónvarpið, lagði mig og beið eftir dinner Dagur 221 # 139 dagar eftir Þriðjudagur 4. Janúar 2005. Smá vinna Eftri vinnu í dag fór ég að æfa og síðan að lesa ,hringdi aðeins í Siggu Dögg. Kvöldið fór í mestu að horfa á sjónvarpið, las rétt fyrir svefninn. Hringdi í Írisi , heyrði í Marel og Evu....... Dagur 220 # 140 dagar eftir ( 20 vikur) Mánudagur 3. Janúar 2005. Loks vinna aftur og heimsókn í dag Vaknaði snemma eftir frekar einkennilegan svefn. Svaf lítð en gat alltaf sofnað aftur þegar ég vaknaði..dreimdi helling mjög skritíð. Fór að vinna um kl 07. var að til kl 15; ætlaði að fara að æfa en var of þreyttur setti Night-music á “classic” og sofnaði aðeins en var vakinn upp með heimsókn þá voru Guðrún og Hafsteinn kominn frá Norge í heimsókn , meiriháttar hjá þeim að gefa sér tíma til að kíkja á mig hingað, veðrið brjálað og allt ófært..Spjölluðum helling saman enda langt síðan við höfum hittst, gaman væri að kíkja til þeirra einhverntíman. Íris hringdi en ég var að taka út beitu svo að ég hringdi til hennar til baka, fór svo að skrifa og að sofa..þar sem að ég fór ekki í ræktina í dag tók ég mér frí ..og slappaði bara af......23:11 Dagur 219 # 141 dagar eftir Sunnudagur 2. Janúar 2005. Lesa og æfa Eyddi deginum í að æfa og lesa.........lítið annað að gera..hringdi í Raggý, Mömmu og írisi......allt þokkalegt á þeim vigstöðvunum

Sunday, March 27, 2005

Desember

Dagur 218 # 142 dagar eftir Laugardagur 1. Janúar 2005. “Nýársdagur” Enn meira átið... Svaf ágætlega út en eftir lunch skelti ég mér í ræktina, Íris og Pabbi hringdu. Eftir kaffi hjálpaði ég Guðbjörgu með dinnerinn, nautalundir og huggulegheit..slappaði af las Samr.við guð no 3 og fór svo að sofa... Dagur 217 # 143 dagar eftir Föstudagur 31. Des 2004 “Gamlársdagur” Fékk að elda smá Fór í ræktina um morguninn tók hresslega á því þar til að Geiri bað mig um að hjálpa Guðbjörgu með kalkúninn sem ég var meria en lítið til í að gera, var með henni langt framm eftir degi og meira og minna þar til að kvöldmaturinn var búinn.. var bara mjög gaman að stússast í þessu. Mamma hringdi um kvöldið. Annars eyddi ég kvöldinu í að borða, horfa á sjónvarpið og síðan var kaffi um miðnætti fór síðan að sofa..... Þessi áramót voru mjög sérstök, ekki leiðinleg eiginlega eins og ég vildi hafa þau, róleg en ættingjana vantaði.......bara slappa af og geta verið með sjálfum sér Dagur 216 # 144 dagar eftir Fimmtudagur 30. Des 2004 Gerði mest lítið....... Svaf út fór í ræktina eins og aðrir dagar, hringdi nokkur símtöl og þh.... # Seinustu dag er eitt mál búið að vera að naga mig aftur og aftur # það er hve hræddur ég er að strákarnir tveir sem voru valdir að andláti mananna tveggja í kef og í moso hvað ég er hræddur um að þeir fari sér að voða, venjulegir menn sem allt í einu eru komnir í þá aðstöðu þeir eigi eftir að vera í fangelsi í allt að 4-6 ár má segja svona upp úr þurru, en svona gerir ekki boð á undan sér, en ekki veit ég hvort að þessir menn hafa fengið áfallahjálp, sálfræði aðstoð eftir að þessi ósköp dundu yfir.. þetta á eftir að þyrma yfir þeim, vonleisið blasir við og jafnvel “UPPGJÖF” verð ég að viðurkenna að jafnvel fyrir mig sem í mesta lagi gat fengið eitt ár, hvarlaði að mér þessi hugsun en þá mjög grunnt og sem betur fer ákvað ég að takast frekar á við þetta en gefast upp..en hvað þá með menn eins og þessa í blóma lífsins engin fyrirvari.. Samanber Guðni kunningi minn úr fiskbúðinni í kef sem var dæmdur í 3 ½ ár að mig minnir, fyrirfór sér strax eftir dóminn, hvernig verður tekið á þeim ef að þeir taka ekki völdin áður, er einhver sem hjálpar þeim? Guðni hefð sennilega sloppið með rúm 2 ár og þar af stóran hluta hér á Kvíabryggju.........vona bara að þetta fari allt vel hjá þeim.. Dagur 215 # 145 dagar eftir Miðvikudagur 29. Des 2004 Tómur dagur Fór í það að vakna snemma, fékk mér morgunverð, síðan að lesa og sofnaði aftur vaknaði um kl 11 var það of seint til að fara að æfa þannig að ég dúllaði mér við að þýða uppskrift og eitthvað annað, eftir lunch þurfti ég að laga til aðeins pöntunina sem ég hafði sent í húsasmiðjuna, gaf Steina vaktmanni nokkrar uppskriftir,Íris bað mig um ahringja allt í flækju á Soho fullt af pípurum að gera við og síðan þarf að ganga frá þessu kæli og frysti máli, er búinn að fá mann til að fá það útúr leigusala.Sagði mér einnig að hún hefði heyrt í Ásbirni og að málið yrði tekið fyrir hjá náðunarnefndinni í byrjun Janúar, hvort að það er í fyrstu eða annari viku veit ég ei. Fór síðan að æfa var að æfa framm að kvölmat. Eftir dinner fór ég að mála málaði 2 kjúklingasalat myndir og grunn að einni landslagsynd..á meðan ég var að mála þá hringdi fyrst Beta, búið að vera hálf erfitt hjá henni með drenginn nýfluttann inn og síðan hríngdi Íris og spjölluðum við saman þar til að hún vildi ekki tala við mig lengur þar sem vinkonur mínar höfðu sent mér jólakveðju og ég þeim á móti....heyrði aðeins í Marel hann þuldi upp fyrir mig hverjir kæmu á 13.brennuna og gat hann ekki sagt bara allir jólasveinarnir heldur þurfti hann að telja upp hvern og einn og byrjaði alltaf aftur ef að hann ruglaðist....alveg frábær drengur. Þegar ég hafði náð að klára að mála fékk ég mér skyrshake þar sem ég var að drepast úr hungri, betra en að hakka í sig smákökum, er búinn seinustu kvöld að fá mér ost bita um miðnætti og klára ég alltaf allan bitann í einu, þökk sé Margeiri vini mínum sem sendi mér þessa dýrindis osta körfu fyrir jól ásam púsli sem ég hef ekki enn haft mig í að byrja á..ætla að pikka eitthvað áfram á tölvuna fara svo að lesa og sofa 00:05 Dagur 214 # 146 dagar eftir Þriðjudagur 28. Des 2004 Bréfaskriftir Vaknaði um kl 10. fór í sturtu ákvað að fara ekki að æfa í dag heldur að svara þeim sem sendu mér kort fyrir jól og þakkir til þeirra sem sendu mér pakka..sendi Evu mini líka bréf með áramótaheit og fleira..eftir kvöldmat horfði ég á fréttir og ætla síðan að klára 2 myndir sem ég gerði grunn að í gær..........kláraði þessar myndir ásamt það að ég málaði nokkrar í viðbót.. fór síðan að lesa og sofa, vaknaði um kl 04 og átti mjög erfitt með að sofna aftur, það var rafmagnslaust hjá okkur þannig að ekki þíddi neitt að fara að lesa.......náði svo loks að sofna aftur Dagur 213 # 147 dagar eftir Mánudagur 27. Des 2004 Painting day no2 Svaf út , sind að segja það en ég var uppí til kl 11,30 gerði mig þá kláran fyrir lunch, síðan fór ég að lesa í samr.við guð no3 bara nokkrar síður í einu allt of mikil inntaka í einu, miklar pælingar og þessháttar, þessi bók lofar góðu eins og hinar tvær. Hringdi aðeins í mömmu.Fór síðan að mála, tók mér smá pásu um kl 17, fór þá í smá 30 mín brennslu 5,24 km, smá magaæfingu, teigjur og síðan í dinner. Eftir dinner fór í sturtu og síðan að halda áfram að mála..er frjálsari við að prufa núna en áður, kanski aðeins kærulausari veit ekki, finnst samt árangurinn nokkuð góður. Íris hringdi í kvöld, allt í stífluveseni á Soho, búið að redda því skilst mér heyrði síðan aðeins í Marel hann er eitthvað smá slappur.. er með dagatalið sem hann gaf mér í jólagjöf fyrir framan mig og er alltaf að horfa á vinarmyndina þar sem hann er með hópnum sínum á leikskólanum..hlakka mikið til að hitta hann og fara að gera það sem við vorum vanir að gera saman aftur, vona að það verði eins aldrei að vita hvernig hann hefur þroskast á þessu eina ári sem við höfum verið aðskildir... Ætla að lesa, horfa á sjónvarpið eða eitthvað og fara síðan að sofa...gerði lista, pöntun í húsasmiðjuni rammar og ýmislegt annað dót sem ég ætla að smíða eftir áramót. ..........22:42 Dagur 212 # 148 dagar eftir Sunnudagur / 2 í Jólum 26. Des 2004 Painting day Svaf út , náði ekki að fara að æfa fyri mat enda ekki ástæða til þar sem ekki neitt er um að vera í dag. Eftir lunch las ég aðeins og fór svo að æfa, jú vit menn að þegar maður dettur í gírinn voru það rúmlega 1,5 tími, finn tími. Fór svo í sturtu og þessháttar eins og maður gerir eftir æfingu, allt blautt sam gat blotnað. Tók til penslana og byrjaði að klessa niður á blað nokkrar myndir, tók víst einar 7 stykki og er nú meira að æfa mig með að taka sama formið nokkrum sinnum með mismundandi stíl, kemur ágætlega út.. var að þessu langt framm á kvöld horfði síðan á Lord of the rings. Hringdi í Írisi um kl 21 en þá var hún ennþá í boðinu gleymdi að hringja aftur..fór frekar seint að sofa öruglega ekki fyrr en um kl 1,30...... Dagur 211 # 149 dagar eftir Laugardagur / Jóladagur 25. Des 2004 Einmanna jól, ekki að það sé eitthvað slæmt þú skilur. ( sennilega ekki) Vaknaði um kl 8,30 sofnaði aftur og var að vakna og sofna til kl 11, horfði þá á sjónvarpið og síðan í lunch, hjálpaði Rósu að eins með grísasteikina fyrir kvöldið. Eftir lunch las ég kortin sem ég hafði fengið, merkilegt hvað margir hafa munað eftir mér, reyndar hefur greinin í víkurfréttum eitthvað ítt við samviskuna hjá sumum, ekki fallega gert hjá mér en reyndar var sú klisja tekin aðeins úr samhengi þar sem ég var að tala þá um annan dreng sem hringdi og hringdi þegar hann kom inn og sá svo að enginn hringdi til baka, ég er svo nískur að ég tími ekki að hringja svona út um allt.. Þegar ég var búinn að lesa öll kortin mörg voru virkilega hjartnæm, sértaklega frá henni Evu minni, ekki laust við að lítð tár hafi lekið niður kinn, hlakka mikið til að fá að hitta hana og fara með henni að gera það sem okkur finnst gaman að gera saman..veit samt ekki hvernig það verður þegar ég kem út, hún er náttúrulega ári eldri en þegar ég fór inn og er kannski ekki neitt cool að hanga með pabba á þessum aldri. Hringdi í Pabba og Erlu þakkaði fyrir mig, síðan hringdi ég í Íris og heyrði aðeins í öllum nema Marel hann var á fullu að horfa á mynd. Hringdi aðeins í mömmu allt í góðu þar.. Akkúrat á jóladag er rétti tíminn til að fara í ræktina, viti menn tók ég mér tveggja tíma törn er greinilegt að ég er að reyna að vinna upp leitin seinustu vikur. Kláraði síðan að hjálpa Rósu með svínasteikina og eftir kvöldmat fór ég að lesa, er að byrja á bókinni samr. Við guð no 3, Íris verður ekki ánægð með það þolir ekki þessar bækur, finnst ég hafa breyst á neikvæðan hátt með lestri þeirra..það verður að koma í ljós hvort að það sé jákvætt eða neikvætt.. horfði síðan á sjónvarpið og pikkaði inn í tölvuna það sem restina af gærdeigunum og síðan daginn í dag. Ætla að halda áfram að horfa á sjónvarpið og síðan jafnvel að lesa aðeins og að sofa.. ég er að hugsa um að mála aðeins á morgun er í þannig stuði allavega núna...........nótt 23:51 Dagur 210 # 150 dagar eftir Föstudagur / aðfangadagur 24. Des 2004 Í dag eru komnir 7 mánuðir og eru þá bara 5 eftir Vaknaði snemma fór í ræktina, tók 45 mín brennslu, magaæfingar og síðan í sturtu og þh. Þá var kominn lunch, fékk mér bara létt og síðan inn að þíða nokkrar uppskriftir fór nú lítið fyrir því en þó, skrifaði í dagbókina. Íris hringdi, saknaði mín finnst þetta erfitt að hafa mig ekki hjá sér í dag, veit að þetta verður allt í lagi hjá þeim bara gaman, hún ætlar að hringja aftur í kvöld þegar þau eru búinn að opna pakana frá mér...Var að koma úr hugvekju og síðdegis kaffi, með lyons, Rauða krossinum og prestinum í Grundarfirði, var fín samkoma, ekki neitt smá veglegt kaffi samlæti..spjallaði helling við ungan félagsfræðing sem var að gera útskryftar-ritgerð um fangelsismál virkilega gaman að tala við hana.. þakkaði fyrir mig og fór svo inn að skrifa og lesa...15:17 Eftir dinner sem haldin var mjög hjátiðlegur þá tókum við upp pakka og fengum gjafir frá Rauða Krossinum, hvítasunnusöfnuðnum, Lyons í Grundarfirði og frá Kvíabryggju.. tókum við alla þessa pakka saman upp og voru þetta mjög nystsamt og góðar gjafir..síðan tók ég upp mína pakka og fékk ég helling meðal annars, góðar bækur, snyrtidót, nærföt, dvd , bol og fleira..við strákarnir skiptumst á að lána dvd og bækur. Mamma hringdi og talaði ég við hana, þakkaði að sjálfsögðu fyrir mig heyrði síðan aðeins í Raggý og vildu þá frænkur mínar Birgitta og Ingibjörg líka tala við mig,, þar sem Íris var ekki búinn að hringja, geri ráð fyrir að hún hafi ekki náð í gegn hringdi ég í hana var hún og þau stödd hjá tengdo, talaði við Marel hann hafði að sjálfsögðu frá helling að segja sama var um Evu, Garðar og Siggu Dögg þá kannski ekki alveg eins ítarlegt en dásamlegt að heyra í þeim. Talaði líka við Írisi lá ekki nógu vel á henni, fannst mig vanta, gaf ekki mikið útá gjafirnar frá mér en allir voru ví st sáttir. Í kaffidímanum hringdi Gunni þjónn og spjölluðum við smá stund saman, fallegt af honum að hringja og muna eftir mér. Ég fór um kl 23 upp í rúm ætlaði að horfa á dvd en nennti því ekki fór bara að sofa.. Má með sanni segja að þetta hafi verið öðruvísi aðfangadagskvöld en alls ekki slæmt, einkennilegt að ég hef getað tamið mér það sakna þess ekki sem ekki er í boði. Lifa eftir aðstæðum..allavega þá vil ég nú ekki segja að ættingjar mínir og fjölskilda eru einskis virði heldur að þar sem ég get ekki verið með þeim þá er það eitthvað sem ég get ekki ráðið við sama hvað..allt annað væri bara til að gera mér dvölina mun erfiðari Dagur 211 # 151 dagar eftir Fimmtudagur /Þorláksmessa 23. Des 2004 Skata og fínheit Svaf frekar lengi, Saltiskur og skata í matinn, langt síðan að ég hef haft tækifæri á að fá mér skötu. Hef alltaf verið og upptekin við að afgreiða og matreiða hana. Eftir mat fór ég að æfa og æfði í um 2 tíma, síðan að þvo. Hringdi nokkur símtöl. Um kvöldið fór ég í snoker og síðan að horfa á sjónvarpið. Rétt fyrir miðnætti var ég orðin svo svangur að ég fékk mér harðfisk sem Margeir sendi mér og popp sem Íris sendi mér, gott að fá sér smá nart annað slagið. Eftir að vera búinn að horfa á sjónvarpið um kvöldið þá sofnaði ég rétt yfir miðnætti. Dagur 210 # 152 dagar eftir Miðvikudagur 22. Des 2004 Vinna Vann til kl 16.00 fór þá í bað og hjápaði Guðbjörgu í eldhúsinu, var að til kl 18;00 fór að æfa um kvöldið beið eftir að símatíminn væri búinn, Sigurþór endurskoðandi hringdi, hvafði ekki heyrt í honum ég veit ekki hvað legnig, en það lá vel á honum fann á honum að hann hefði átt að taka fyrr í taumana, leyfa mér ekki að ganga svona langt, nóg um það hann var að öðru leyti hress.. Íris hringdi og Birnir en ég hafði ekki heyrt í honum síðan að ég kom hingað, spjölluðum saman um dagin og veginn, allt við það sama hjá Írisi hún er búinn að vera á fullu að snúast í kringum Soho og jólaundirbúninginn, merkilegt hvað það er mikið á sig lagt fyrir þessa 3 daga. Heyrði líka aðeins í Marel og Evu spenningur í þeim fyrir jólin.. Fór að æfa uppúr kl 20:30 og var að æfa til 22.30 eða í um 2 tíma enda veitti ekki af er ekki búinn að taka nógu á uppá síðkastið. Sofnaði snemma. Dagur 209 # 153 dagar eftir Þriðjudagur 21. Des 2004 Vinna Vann til kl 09 fór þá uppí bragga og náði mér í girni til að setja afaná myndirnar, fór síðan heim í sturtu og kláraði að gera myndirnar klárar, var ekki búinn að græja þæer fyrr en kl 12. það er að bora, skrúfa og setja böndin á þær, eftir mat fór ég að byrja að pakka þeim inn, var að því til um kl 15:00 fór þá í kaffi og síðan að skrifa bréf með hverjum pakka..var ekki búinn að þessu öllu fyrr en um kl 17;00 fór þá að lesa, dagblöðin, Íris sendi mér í dag alla pakkana mína, ekki neitt smávegis, gaman var að sjá pakkana frá öllum börnunum mínum, greiin að þurfa að senda manni svona eitthvað annað, og leiðinlegt fyrir þau öruglega að vita af mér hér, hlítur að vera soldið erfitt ef að ég set mig í þeirra spor. Íris var búinn að kaupa eitthvað handa krökkunum frá mér en ég ákvað í dag að gefa þeim öllum mynd líka, hvursu ánægð þau verða með það veit ég ekki, kannski Marel, hann er svo mikill listakall, get nú ekki annað sagt en að maður er spenntur yfir hvernig fólki á eftir að líka gjafirnar, skrítið að hafa aldrei þurft að taka þátt í þessu áður, en þarmeð hef ég sennilega aldrei gefið eins persónulegar gjafir áður, allt gert af mér, myndir og rammar...engin eins og var mjög erfitt að velja hver ætti að fá hvaða mynd, byrjaði á Íris þar sem hún gerð að mér fannst frekar lítð úr þessu hjá mér, ekkert nema englar og ufo, síðan valdi ég handa pabba og Erlu, tengdó, Siggu Dögg , Særúnu verð að gefa henni eitthvað sem smá þakklætisvott fyrir ALLT, hún og Bjarni eru búinn að vera frábær að standa svona við bakið á Íris á þessum erfiðu tímum fyrir hana. Síðan var nú ekki erfitt að velja fyrir Evu og Marel en Garðari gaf ég pening, Íris var búinn að kaupa handa Torfa og er hann nú ekki á þeim aldri að vilja mynd að ég held.. Með sendingunni frá Íris komu fæðubótaefnin mín, ætlaði að fara að æfa um kvölið en hafði ekki neina orku í það, er ekki enn búinn að ná mér úr þessari kvef pest.. Um kvöldið þíddi ég loks 2 uppskriftir og er nú að far að hringja í Írisi og jafnvel eitthvað annað síðan að far að sofa, það eru víst nokkur kör sem við þurfum að gera við á morgun, það er þá allavaega smá vinna á morgun....kl er 22:19 Dagur 208 # 154 dagar eftir Mánudagur 20. Des 2004 Vinna og klára gjafir Fór út um kl 05 og var að vinna til kl 15: fór þá inn í sturtu, Ásbjörn hringdi í hádeginu og var þá tilbúinn með bréfið fyrir dóms og kirkju, Íris skutlaðist með það beint til þeirra, reikna nú ekki með neinu frá þeim.. Lagði mig um daginn eftir vinnu, kláraði að setja myndir í nokkra ramma um kvöldið, tók nú samt myndir af þeim áður og setti inn í tölvuna..var ekki farinn að sofa fyrr en rétt fyrir kl 01: Birnir Bergs hringdi í kvöld sem og Íris, spjallaði létt við þau heyrði aðeins í Marel nóg að gera hjá honum hann er á fullu að teikna og mála og eitthvað tókst nú ekki eins og hann vildi og vorum við að ræða það að hann þyrfti að gera það bar aftur svaraði hann þá til að “já æfingin skapar meistarann” eins og gamall kall, en mikið rétt......verð að fara að henda mér uppí Dagur 207 # 155 dagar eftir Sunnudagur 19. Des 2004 Mamma og Pabbi í heimsókn í dag Vaknaði um kl 9,30 fór þá í sturtu og síðan að klára að pakka inn myndunum fyrst í rammana og síðan í pappír, verð ég að segja að ég er bara nokkuð sáttur hvernig þetta enda í römmunum. Mamma og pabbi komu um kl 12:30 komu með sendingu frá Margeiri, og fleiri ásamt góðgætu úr eldhúsi mömmu, þau voru hér til um kl 17: og áttum við virkilega góðan dag.. mikið spjallað og spékúlerað.. Um kvöldið komu hellingur af bölum þannig að það verður nóg vinna á morgun og hinn..var það upptekinn um kvöldið að ég náði ekki að hringja í neinn. Fór snemma að sofa þar sem ég varð að vakna um kl 05 til að vera með einhverja beitu klára fyrir meistarana þegar þeir voru kláir til að beyta.. Dagur 206 # 156 dagar eftir Laugardagur 18. Des 2004 Tók því rólega í dag Kl 23:55 laugardagskvöld, var að klára að líma rammana saman kemur í ljós í fyrramálið hvort að þeir haldi. Mamma og pabbi koma á morgun og verð ég að vera tilbúinn með gjafirnar þeirra að minnsta kosti.. Hringdi áðan í mömmu og Írisi ágætt hljóð í þeim báðum..Ætlaði varla að nenna að æfa í dag en dreif mig samt, mikið var það gott þegar maður hefur sig loks af stað.. er ekki enn búinn að ná úr mér þessari kvef pest.. náði meira að segja að sofa til kl 12 í dag þar sem ég var að til kl 02 að klára að skrifa þessi jólakort, eitthvað sem ég hef aldrei gert áður allavega svo að ég muni eftir ekki nema þegar maður var í gaggó J. Rússneskur boxari er að æfa hérna hjá okkur eða bara að prufa ekki víst að hann fái leyfi til þess kemur í ljós á næstunni. Íris er að gugna á Soho og ljái ég henni það ekki, er að setja það á sölu, hefur varla efni á að láta reksturinn ganga áfram hálfpartinn vona að það þurfi nú ekki að selja staðinn. Verð að geta látið hann ganga þegar ég losna.. ætla að fara að sofa núna enda klukkan orðin 00:03 Dagur 198-205 # 157 dagar eftir Laugard - föstud 11-17. Des 2004 Greinilega brjálað að gera hjá mérKl er 02:01 föstudagskvöld og ég er ekki búinn að skrifa neitt síðan um seinustu helgi, hvða veldur því, jú það er búið að vera nokkuð mikið að gera einnig var ég með einhverja pest í mér frá þriðjuda – í dag.. En svo að ég byrji einhversstaðar þá kom Raggý á sunnudeginum klippti eiginlega allt liðiði og seldi hárvörur og kerti, hún var ekki farinn fyrr en um kl 21 um kvöldið, allt í góðu með það. Hún kom með jólapakka handa mér og bréf frá Siggurósu sem ég ætla ekki að opna fyrr en á jóladag. Það var vinna hjá okkur á mánud-miðvukud en seinnipartinn miðvikud og fimmtudag slappaði ég af og reyndi að ná þessari pest úr mér.. er að verað nokkuð góður núna, fór í salinn í gærkveldi svitnaði vel og hefurþað öruglega losað soldið um. Pabbi kíkti til mín á þriðjuaginn með pakka og umslag, ætla að opna pakann á aðfangadag eins og menn eiga að gera og umslagið á jóladag. Hann var bara hress, stoppaði stutt við , vildi hraða sér í bæinn aftur þar sem færðin var ekki nógu góð, hálka. Er búinn að vera í símasambandi við flesta, Írisi, mömmu, og Raggý heyrði aðeins í Marel og Evu í vikunni, Marel er mjög spenntur yfir öllu þessu jólastússi og er á fullu að teikna jólamyndir. Fékk bréf í dag frá Ásbirni Lögfr og er verið að taka málið fyrir hjá DKMR. Þurftum að gera andsvar ef að við vildum við svari FMSR, var lítið við það að athuga svo að hann ætlaði að senda inn smá texta í dag.. Var að klára við að skrifa jólakortin allt klárt þar. Ekki alveg eins gott með jólagjafirnar en þær verða nú eitthvað í seinni kantinum, sá sem er að saga fyrir mig listana er búinn að vera í flensu og reiknar ekki með að geta klárað það fyrr en einhverntímann um helgina.. verð þá bara að senda gjafirnar með rútunni eftir helgi..verð að fara að sofa núna er alveg að leka niður. Lofa að láta ekki líða svona langt á milli með að skrifa aftur..búið kl 02:15

Monday, October 11, 2004

Nokkrar vikur enn

');" target="_self"> ');" target="_self"> Dagur 43. 318 dagar eftir Sunnudagur 11. júlí 2004 Er þá búinn að vera í 6 vikur 17:33 Var að klára að skrifa gærdagin og er að hella mér uppá grænt te, sit hér við vanillu-kertaljós og hlusta á klassíska tónlist. Dagurinn byrjaði ekki fyrr en um kl 9:30 með glaða sólskini sem hefði mátt vera í gær. Fékk mér morgunverð og fór í sólbað en það var varla nógu hlýtt, hékk í því til hádegis fór þá í lunch og aftur í sólbað til kl 13 en gafst þá upp og fór að lyfta síðan í golf og göngutúr eftir það. Fannst þá nóg komið að hollustunni og fór í sturtu og að fikta í tölvunni. Þegar við vorum að spila golf fundum við dauða rollu, hún hefur sennilega drepist úr elli! Nydauð ekki byrjuð að stirna, létum vita og var hún svo sótt. Eftir kvöldmat var lítið annað að gera en að spila snoker og horfa á sjónvarpið, Siggi Hall hringdi var að til kl 02, fór þá að sofa. Dagur 44. 317 dagar eftir Mánudagur 12. júlí 2004 Ný vika byrjuð og lítið umm að vera 18:05 Var að klára að skrifa gærdagin og er að hella mér uppá grænt te eins og í gær, vaknaði ekki fyrr en um kl 10 í morgun fékk mér þá skyr shake og hékk í tölvunni til hádegis, ætlaði að fara að æfa en komst ekki að. Eftir lunch horfðum við á geim álfinn Alf og síðan fór ég inn að leggja mig, er hálf svona down eftir heimsóknina á laugardag, maður fer að hugsa allt of mikið.. keyrði mig upp og fór í ræktina tók ágætlega á, í sturtu og hér er ég nú.. var að frétta að það er bátur búinn að semja við okkur um 50 bala annan hvern dag þannig að það ætti að byrja hjá okkur aftur vinna á morgun og kanski út þessa viku í það minnsta. Eftir dinner gerði maður mest lítið, Raggý hringdi og spjölluðum vel saman, hún ætlar að kíkja næsta laugardag, annars var bara horft á tw slappað af Dagur 45. 316 dagar eftir Þriðjudagur 13. júlí 2004 Loksins vinna aftur 17:45 er þá búinn að fá smá vinnu í dag, var búinn fyrir lunch. Eftri lunch þá fór ég í ræktina, og síðan að lesa og horfa á tw. Maður er greinilega eitthvað vinsæll í dag bæði Valur Ketils og Jóhanna Elka hringdu og boðuðu heimsókn Jóhanna á fimmtudag en Valur á laugardag þarf að hringja í hann og ath hvort að hann geti ekki komið frekar á sunnudag. Það lítur út fyrir að vera vinna alla þessa viku. Hringdi um kvöldið í Val og getur hann komið á Sunnudaginn, enn betra fyrir hann, hringdi einnig í Veigu og Siggu Dögg en hún var að fá stöðuhækkun eða nýja áskorun er að fara að vinna fyrir Guffa á Apótekinu á japanska staðnum Moru og á að sjá eitthvað um staffamálin og þh.. meiriháttar hjá henni, þetta á eftir að ganga vel hjá henni er ég viss um.. hún ætlar að reyna að kíkja einhvern daginn.. nóg að gera hjá henni. Dagur 46. 315 dagur eftir Miðvikudagur 14. júlí 2004 Litil vinna, Hjördís frænka á afmæli 10:44 var að koma úr vinnunni, og er búinn í dag, þannig að dagurinn ætti að fara í það sama að slæpast, lesa og fiikta í tölvunni. Ætla að hringja núna í Hjördísi, og á Soho. Eftri að ég var búinn að hringa og fá mér lunch, þá fór ég að lesa í setustofunni, Hjördís var bara sátt við að ég hringdi ætlaði að taka á móti Sigga Bróðir / frænda seinnipartinn. Mér að óvörðum þá byrtist Albert Sig minn kæri vinur all skyndilega, að kíkja á gamlan vin. Meiriháttar að sjá hann, hann leit mjög vel út, áttum við virkilega góða stund saman, spjölluðum og fórum í fjöruna og að labba um í náttúrunni. Kom hann með helling að dvd, (hélt ég á tímabili að gangurinn myndi springa þegar það spurðist út, félagarnir öllum langaði til að sjá nýtt mynda efni). Einnig kom hann með ávexti,harðfisk og grænmeti, meiriháttar sending það, er ég reyndar kominn með þónokkar byrgðir af ávöxtum. Meiriháttar að fá svona óvænta heimsókn en eins og fyrr sagði þá áttum við meiriháttar dag og þakka ég honum kærlega fyrir komuna. Þegar hann var farinn fórum við strákarni í fótbolta , svitnuðum við vel , þegar við kláruðum boltann var komin dinner, eftir dinner hringdi Íris og allt gott að frétta af Soho, og krökkunum, Marel var að klára sundnámskeiðið sitt mikil framför sagði Íris, hvernig verður hann þá í sundinu þegar mér gefst tækifæri til að fara með hann! Hann var meiriháttar klár fyrir þannig að mig hlakkar mikið til að geta farið í sund með krökkunum. Grey Marel skilur ekki afhverju ég er bara ekki að vinna á Soho og komi heim, því miður er það bara ekki hægt. Annars fór kvöldið í það að horfa á tw, snoker og síðan að sofa... Dagur 47-51. 310 dagar eftir Fimmtud - mánudagur 15-19. júlí 2004 Meiriháttar veður, miklar heimsóknir engin vinna 17:52 Mánudagur, nú er hellingur búinn að gerast, eins og sést þá hef ég ekkert skrifað síðan á mánudag, vegna mikilla anna í heimsóknum og hreint og beint meirháttar veður, má sega að frá því á fimmtudag hefur maður verið kominn út kl 8-9,30 og komið inn aftur kl 22+ og þá varla náð að horfa á tw hreinlega rotast við að fara á koddann. Á fimmtudaginn kom Jóhanna Elka skrifstofumær hjá okkur á Soho og á Borginni í smá meimsókn og kom hún með helling af grænmeti, ávöxtum og lesefni meiriháttar sending hjá henni kom sér meiriháttar vel og ér ég þvílíkt ánægður með hvað allir eru að hugsa um “hollustuna” í minn garð en þetta er akkúrat það sem ég vill nóg af ávöxtum og hollt snakk J Við spjölluðum heilmikið saman en hún var á Hesta-ferðalagi hérna í nágrenninu og fannst rétt að kíkja á gamla (mig) ég held að hún hafi bara veið nokkuð sátt við aðstæður en flestir sem koma hingað í fyrsta sinn búast öruglega við allt öðru , þetta er eins og lítill heimavistarskóli segja flestir þega þeir fara. Á föstudags morguninn byrjaðið ég á því að hengja út og setja nýtt í vélina, nú þvæ ég rúmfötin alltaf í hverri viku eftir að ég sá í Opreu að maður ætti að gera það þar sem rúmið væri allt á iði í rykmaurum sem nærast á dauðri húð og öðrum líkamsvessum svita, húðfitu og þh, getur valdið bólum og kláða í húðinni.. nei takk ég vil frekar bara sofa einn. Um kl 11 þá komu Gaui og Malla Tengdó á leið sinni til Akureyrar, spjölluðum við saman um daginn og veginn, síðan héldu þau áfram sína leið. Föstuagurinn fór annars bara í það að liggja í sólbaði, lesa spila fótbolta, sem við gerðum líka í gær, en er maður að drepast í fótunum eftir allt þetta hlaup ekki alveg vanur að sprikla svona. Farið var í göngutúr um kvöldið og spilað golf, meiriháttar dagur allir vel þreyttir og sáttir enda man maður varla eftir svona góðu veðri hér á landi. Laugardagurinn var alls ekki síðri, var farinn út kl 9,30 að lesa og í sólbað, Raggý systir kom um kl 11 og var til 18:00 áttum við meiriháttar dag, hún kom með nokkur kerti handa mér og seldi öðrum, klippti mig og 2 aðra svona aðeins uppí kostnað við ferðina. Veðrið var alveg meiriháttar, þvílíkur hiti og sól, hef aldrei áður verið í svona miklum hita hér á landi áður, er orðinn rosalega dökkur. Við Raggý lágum í sólbaði og fengum okkur osta, ávexti og kex sem hún kom með í rosafallegri körfu frá Veigu vinkonu þakka ég henni kærlega fyrir, nutum við þess einnig á sunnudaginn eftir golgið, löbbuðum síðan niður í fjöru, og dunduðum okkur þar. Rosalega góður dagur með henni og öllum hérna fullt af fólki í heimsókn og var hálfpartinn slegið upp diskóteki bakvið hús í sólinni. Eftir að Raggý fór og allir hættir í sólbaði var ákveðið að fara aftur í fótbolta ungir á móti gömlum , gömlu hafa alltaf unnið hingað til, og síðan í golf, og í göngutúr, Eftir langan og skemmtilegann dag var gott að leggjast á koddann og fara að sofa Spratt upp eins og stálfjöður að morgni sunnudags, veðrið enn það sama meirháttar fallegt og heitt, fékk mér hollan morgunverð eins og vanalega Skyr,musli, ávexti og gulrótar djús en ég er víst búinn að drekka eina flösku af gulrótarsafa á einni viku sem skýrir kannskia afhverju ég er búinn að taka allan þennan lit á svona skömmutm tíma. Fór út með mitt sólbaðs kit, dínu,kodda, og fullt af lesefni. Um kl 11 kom Valur Ketils og tókum smá sólbað og síðan fórum við aðeins í golg, hann er ekki neitt smá klár, maður verður að taka sig heldur betur á ef að maður ætlar að vera eitthvað í líkingu við hann. Dagurinn hjá okkur var rosalega skemmtilegur, en við höfðum frá mörgu að segja og spjalla um, fórum niður í fjöru og böðuðum okkur í sólageislum frá sjónum. Hann þurfti síðan að fara um kl 15:30. um kl 16 kom Sigga Dögg og Torfi Fannar , stóru börnin míin og var þar sama sagan, meiriháttar enda hef ég ekki sérð Torfa mjög lengi en hann mætti nú aðeins fá smá kjöt utan á sig og Sigga alltaf eins, hress og bara eins og hún á að vera. Þau máttu ekki vera lengur en til 18; þannig að þá fóru þau og ég inn að borða í golf síðan fengum við okkur kaffi og osta í tilefni helgarinnar. Var maður bara nokkuð þreyttur eftir daginn. Mánudagsmorgun var maður vakinn kl 7.30 en það höfðu dottið nokkrir balar í hús sem þurfti að gera. Var að því til 13,00, ekki var búið að láta vita af þeim um kvöldið..Eftri vinnu komu mamma, pabbi, Guðrún og Gulli litli stoppuðu þau í nokkra tíma, en þau ætluðu upp hafleg að koma á leiðinni suður eftir ferðalagið sem þau fóru í seinustu viku og átti að enda í dag, en þau fóru beitn heim í gær og gerðu sér auka ferð hingað í dag,, dugleg að leggja þetta á sig til að kíkja á krimmann í sveitinni.. virkilega gaman að fá þau, löbbuðum um og spjölluðum heilmikið.. um kvöldið hringdi Íris og Marel talaði heilmikið við Marel, hann fór í húsdýragarðinn ídag og sagði mér frá öllum dýrunum og hvað hann gerði skemmti sér vel. Við gömlu spjölluðum saman á okkar nótum, sem eru yfirleitt ekki neitt upplífgandi, getur verið að ég hafi verið full neikvæður í hennar garð og dregið hana niður,það sem að hún þyrfti helst að fá frá mér er stuðning til að hafa orku í að reka fyrirtækið þar sem alltaf koma upp vandamál og mikið af þeim sem hún er ekki vön að takast á við. Einnig er allt á lausu hvað verður þegar ég losna héðan, ég er ekki viss sjálfur hvað ég vil, en til að við getum rætt það að taka saman aftur þá verðum við bæði að laga okkur, og laða að hvort öðru sem að ég held að verði erfiðara og erfiðara eftir því sem að ég er lengur í burtu. Einhvernveginn er maður farinn að horfa á lífið á annan hátt, þetta lífsgæða kapphlaup er ekki alveg málið, það sem skiptir máli er heilsan, vera hamingjusamur ,fjölskildan síðan kemur velgengnin og vinnan, eitthvað sem ég setti no 1 fyrir nokkrum árum síðan vinna og velgengni en eitthvað hefur klikkast hjá mér, eða að maður sé bara farinn að eldast. ## Mér þykir leiðinlegt að við getum ekki talað saman og látið hvort öðru líða vel í návist hvors annars, verið opin og skilja hvort annað, finnst mér eins og að tíminn, þroskinn og aðstæður hafi leitt okkur enn frekar sundur en maður hefði haldið að ætti að gera, frekar að þjappa okkur saman..eitthvað sem við verðum að tala saman um.. ## ( má sleppa ) Á morgun eru nokkrir balar, best er að fara að sofa og gera sig klára fyrir þá.. Er búinn að sleppa æfingun meiripartinn í seinustu viku vegna veðurs og fótbolta þannig að ég verð að taka vel á á morgun.. Dagur 52. 309 dagar eftir þriðjudagur. 20 júlí 2004 Nú verður maður að halda áfram! 16:57 vaknaði snemma í morgun eða um kl 06:45 en ég hafði stillt úrið mitt á það áður en ég kom hingað og er batterið að verða búið svo að ég sé ekki á skjáinn til að endurstilla það, en það er samt fínt þegar maður á að fara að vinna að vakna svona snemma. Byrjaði að beyta um kl 07:30 og var að til 13.15 fór þá inn í kaffi og fékk mér lunch shake þar sem ég nennti ekki inn í lunch, það voru hrossabjúgu í matinn, eitthvað sem ég er ekki alveg hrifinn af. Þar sem ég var búinn að ákveða að halda áfram að gera þessa hluti sem ég var byrjaður á , td skirfa, lyfta , lesa og þh fór ég eftir kaffið í ræktina tók aðeins á en var farinn að finna til aftur í öxlinni þannig að ég tók mér pásu. Hjördís frænka sendi mér bréf og myndir af mínka vinnunni sinni, skemmtilegt bréf frá henni en hún er á fullu í öllu þarna í sveitinni. Er nú að skrifa og verð öruglega að því framm að kvöldmat. Eftir kvöldmat horfði ég á tw, kláraði bréf til Vals og Hjördísar, tók einn snoker og síðan að sofa, enda smá vinna á morgun Dagur 53. 308 dagar eftir ( 10 mán. 1 vika og 1 dagar ) miðvikudagur. 21 júlí 2004 Dagarnir líða freka hægt! 16:04 Eftir beytningu í morgun en ég var búinn með mitt um kl 10 fór þá í ræktina, er ekki alveg nógu góður þannig að ég æfði mjög takmarkað, fór í lunch , lasagna sem mætti aðeins lappa uppá, horfði síðan á sjónvarp og steinsofnaði framm að kaffi. Albert vinur minn kom um daginn með ferskar döðlur, plómur og apríkósur, er ég að koma steinunum til til að gera litla döðlu pálma, og tré er það aðeins að takast, lét kaupa fyrir mig mold í gær og átti einn starfsmaður hér potta þannig að ég er tilbúinn, berð bara að bíða þangað til að það eru komnar rætur úr steinunum.. strákarnir eru búnir að panta pálma ef að þetta tekst. Eftir kaffi var ég frekar eyrðarlaus og kíkti á bókasfnið, en fattaði að ég er ekki enn búinn með það sem ég er með inni hjá mér og einnig að ég ætti nú að skrifa Veigu vinkonu bréf og þakka henni fyrir körfuna á laugardaginn.. Kláraði bréfin til hennar Vals og Hjörsísar frænku. Um kvöldið var það ferkar rólegt og þægilegt, tw og chill out. Dagur 54-7. 307-4 dagar eftir Fimmtud –Sunndudags 22 & 25 júlí 2004 Allt of gott veður og mikið að snúast. 23:57 sunnudagskvöld, þegar ég opnaði þetta skjal sem ég skrifa þessa dagbok í byrjaði það á 30. maí sunnudagur sem gerir að ég er búinn að afplána 8 vikur eða 2 mánuði af 12. sem segir mér að þetta styttist nú allt. Hef ég nú allan þennan tíma beðið eftir að fá eitthvað bakslag, en það hefur ekki komið enn að miklu leyti nema hvað maður finnst stundum mikið vera eftir en þá hugsa ég mér með mér að það eru nú bara um 7 mánuðir eftir hér síðan ætti ég að komast á Vernd í lok feb 05. í seinustu 3 mánuðina. Ég verð bara að vera duglegur að skrifa, lesa og vera iðinn. Fengun nýrar reglur sem við erum búnir að grúska í og ætt það að vera í lagi fyrir mig að vinna í Keflavík þegar ég fer á Vernd, einnig eiga börnin mín undir 18ára rétt á barnabótum þar sem ég er í fangelsi í ár reglurnar segja ca 130 þús á ári, munar um það fyrir Írisi, einnig á hún að nýta persónuafsláttinn minn þannig að það safnast saman. Eins og sést þá hef ég ekki mikið verið að skrifa sl. daga búið að vera þónokkur vinna í síðustu viku, síðan höfum við verið að sýsla ýmislegt. Fannst mér föstudagskvöldið frekar langt og leiðinlegt, þreif herbergið mitt hátt og látt, lenti síðan á spjalli við einn af okkur sem er búinn að vera lengur hér en ég en losnar á svpuðum tíma og gat hann stappað aðeins í mig stálinu. Það er búið að valda mér smá titring, eftir seinasta spjall okkar Írisar hvort að ég hafi verið að láta þetta þunglyndi eða áhyggjur mínar vera að hafa áhrif á hana og að hún kæmi þá ekki á laugardaginn með Evu og Marel, en hún kom þó. Laugardagsmorgunninn var einkennilegur því að ég var vanur að undirbúa mig fyrir það að þau kæmu Íris og co, (aðra hverja helgi ) og var viss um að þau kæmu ekki , fyrsta lagi var allt of gott veður (hefur alltaf verið leiðnlegt veður ) og í öðrulagi hafði hún ekki neitt hringt alla vikuna. Fór nú samt í sturtu, rakaði mig og klæddi upp, við strákarnir hittumst svo nokkrir inni hjá mér og fengum okkur kaffi, en við gerum það mjög oft að hittast hjá einhverjum okkar og spjalla yfir kaffibolla. Sá þá bílinn renna í hlaðið, tók í skindi til og skundaði framm, Eva var kominn inn og Marel fljótt á eftir henni hrópandi og leytandi af mér, með súkkulaðishaka að sjálfsögðu fyrir gamla, guð hvað ég var ánægður með að sjá þau, ég var virkilega farinn að sakna þeirra, huga hvernig það verði í vetur þegar skólinn, æfingarnar og veturinn er kominn, ég hlít að eiga einhvern góðan að til að skutla þeim í heimsókn til mín, ég get ekki ætlast til að Íris nenni að koma aðra hverja helgi með þau, bæði er það allt of dýrt og svo eru okkar mál ekki á hreinu og engin aðstaða til að tala um okkur þegar krakkarnir eru hér,og ekki get ég gert það í síma, annað vandamál er með að fá að skutla krökkunum er það að hún treystir ekki öðrum til að skutla þeim til mín, sbr þegar ég spurði hana hvort að Marel og Eva mættu fara með Raggy þegar hún kom, blátt nei, ekki í míl með ókunnugum, það hlítur að koma allt í ljós. Veðrið var meiriháttar þennan laugardag og vorum við úti allan tíman nema Íris vildi frekar slappa af inni, og ekki taka þátt í að skemmta sér með okkur. En við fórum í golf, trivial Pershot, fótbolta, labba og niður í fjöru.. áttum meiriháttar dag, Marel náði að meiða sig aðeins í ræktinni, rann til ekki neitt alvarlegt. Íris keypti handa mér slatta af ávöxtum og kom með spaghetti, skúffuköku, muffins og kanilsnúða, ásamt kaffi og öðru góðgæti , hún hugsar vel um mann. Það er beðið eftir skúffukökunni í kaffinu þega hún kemur Eftri þennan skemmtilega dag með krökkunum þá tókum við strákarnir einn golf hring og var það öruglega einn minn besti hringur allt að koma, ágætur í löngu höggunum en á eftir að æfa mig betur í þeim stuttu. Sunnudagurinn var eins, horfði á 2 myndir í dvd fór í lunch, ekki neitt voða spennandi síðan eftir kaffi ákáðum við að taka smá golfhringi sem enduðu í tveimur í roki og rigningu. Hittumst svo hjá einum okkar í kaffi en slepptum allir dinner þar sem það sem var í lunch var í einum potti í dinner. Ákváðum frekar að fara í rætina, enda kominn tími til hef lítið sem ekki neitt æft í seinustu viku, var slappur í öxlinni annað hvort ofæfing eða vantar vítamínin mín. Tók magann alveg í gegn og hljóp aðeins á brettinu. Í kvöldmat fékk ég mér spaghetti og kjötsósuna sem Íris kom með, var farinn að sakna þessa, fékk mér það líka í gærkveldi þar sem ég er ekki neitt voða hrifinn af saltkjöti.. Eftir spaghettiið tókum við einn snoker og síðan var horft á sjónvarpið þangað til að ég mundi eftir að ég ætti eftir að hamra á tölvuna, dreif það af..en verð að fara að koma mér í háttinn núna þar sem það er smá vinna á morgun.. aðeins 10 mán eftir “so far” Dagur 58. 303 dagar eftir Mánudagur 26 júlí 2004 Leiðindar veður 23:44 þá er dagurinn að lokum kominn, tók aðeins 2 bala í morgun í beytningunni, eftir það var lunch og ætlaði á æfingu en steinsofnaði framm að kaffi, fórum í snóker eftir það og æfði ekki fyrr en eftir dinner. Langaði til að sjá Angel myndina um aids, sá hana og lofar hún góðu. Um kvöldið var rætt um næstu helgi sem er verslunarmannahelgin, en langar okkur til að hafa fjölskyldudag og grilla handa öllum seinnipartinn og slá upp smá partíi. Þarf að vinna að eins í því á morgun að fá hráefni og slíkt. Annars hefur lítið breyst síðan í gær, Nökkvi Svavars hringdi í kvöld og er hann að lána mér hátalara við tölvuna, ætlar hann jafnvel sjálfur að kíkja í þessari eða næstu.. Ætli ég setji ekki bara dvd í tækið og sofni út frá því. Dagur 59. 302 dagar eftir Þriðjudagur 27 júlí 2004 Áfram fúlt veður 23:38 Nú er þessi dagur liðinn , sit við tölvuna með vanillukerti á borðinu, slökkt ljós, aðeins birtan af kertin og skjánum lýsa upp herbergið undir tónlist frá Bubba Mortheins frekar rómo og kosy .Ekki hefur neitt merkilegt gerst í dag tók þrjá bala í morgun, var búinn að vinna um kl 14.00 fór þá í snóker, kaffi og síðan að æfa. Eftir dinner var sama sagan snoker, tw og hringdi í dag á Soho og Mömmu um kvöldið hringdi ég til Evu og Marels hann vill að ég kaupi handa honum hund og fiska, allt gott að frétta af þeim, hringdi síðan í Raggý systir hún er búinn að vera slöpp, hélt að það væri eitthvað í nýrunum en svo er ekki..ætlar hún að kíkja á fjölskildudaginn okkar á laugardaginn ef að hún er búinn að ná heilsunni aftur.. Fékk lánaðan dvd og ætla að horfa á hann þegar ég er búinn í tölvunni ......... Dagur 60-62. 299 dagar eftir ( 60 Dagar gera 2 mánuðir) Miðv –Föstud 28-30 júlí 2004 Gera klárt fyrir partíið um helgina 17:23 eftir að vera búinn að spila snoker í bryggjumótinu okkar þá er gott að setjast niður við tónlist og slá inn léttann texta. Dagarnir hafa verið frekar langir þessa daga þar sem veðrið er búið að vera frekar leiðinlegt, ekki hægt að vera mikið úti , engin vinna og lítið um að vera inni. Erum búnir að vera að skipuleggja bryggjuhátiðina sem er á laugardaginn og var ég í dag að gera lambið og kjúklinginn klárann, lambið er mexikóskt en kjúklingurinn í sítrónu og rósmarine. Kartöflusalat og þh. Annars er ég að hamast við að skrifa bréf, lesa og horfa á dvd. Um helgina ætla Raggý systir að koma í heimsókn með sínar litlu og Ragna Hjördís frænka með henni, verður gaman að hafa þau öll hérna en meiningin er að ættingjar fái að borða með okkur og hafa svona smá verslunarmanna stemningu hér.. Dagur 63/4/5. 296 dagar eftir Laugardagur- mánudags 31 júlí – 2ágúst 2004 Verslunarmannahelgin aftstaðin Mánudgur 19:45 gef mér loksins tíma í að skrifa niður nokkra minnispunkta eftir helgina, helgin er búinn að vera bara nokkuð ágæt miðað við veður, búið að vera hávaða rok og rigning, lægði aðeins upp seinnipartinn á laugardag og síðan var logn í dag en rigning á köflum. Laugardagurinn var fjölskildudagur hjá okkur, til mín komu Raggý og Hjördís ásamt dætrum, lét ég ekki Írisi vita af þessu þar sem ég hafði ekki neitt heyrt af henni alla vikuna og átti hún vaktina á Soho um helgina og var í ferlegri fílu þegar hún kom hingað helgina áður fannst mér nokkuð ljóst að hún færi ekki að taka sér frí til að koma hingað enda búið að plana allt annað með krökkunum upp í bústað og þh. Þegar hún hringdi á föstudagskvöldið, kom mér reyndar á óvar að hún hringdi þar sem hún hafði ekki hringt alla vikuna hún var allavega ekki sátt við mig að hafa ekki gefið sér séns á að þyggja eða neita, var hún frekar fúl og yfir því hvað ég hefði það allt of gott hérna í sumarfríinu mínu, hefði ekki neitt annað að gera en að lyfta, spila snoker , golf og spjalla ,meiri letilífið, algjör auli! Ef ég ætti einhverja völ þá myndi ég nú frekar vilja vera ekki hér og vera í amstri hversdagslífsins, kanski er hún fúl af því að mér líður ekki illa, næ að höndla þessa veru hérna á jákvæðan hátt, kannski er hugsunin sú að þegar maður er í fangelsi á manni að líða illa og sökkva sér ofaní sjálfsumvorkun og volæði? Allavega var þessi laugardagur hjá okkur strákunum alveg meiriháttar, allir skemmtu sér mjög vel, grillið heppnaðist vel nægur matur sáum við um það og hjálpuðu Raggý og Hjördís einnig til á meðan horfðu stelpurnar á dvd en Birgitta fór að elta kanínuna, náði henni að lokum. Hjördís lánaði mér harðan disk með helling af myndefni og tónlist,, er ég strax farinn að hlusta og horfa á hann, meiriháttar, Raggý kom með nýju kokkabækurnar mínar sem ég keypti áður en ég kom og í fyrra, er fínt þegar haustar að fara að lesa meira og skoða fræðin. Sunnudagurinn og mánudagurinn var hefðbundinn Siggi nemi og Garðar ætluðu að koma þá en komu ekki Íris hafði talað um að koma í dag bara ein en hætti við það útaf því að þeir ætluðu að koma. Sennilega einnig af því að ég bauð henni ekki í grillpartíið, Þannig að mánudagurinn og sunnudagur fóru í ræktina, lestur og þannig stúss...er núna að bíða efttir að dagurinn líði, ætla bara að lesa og horfa á tw í kvöld.. Dagur 66. 295 dagar eftir Þriðjudagur 3. ágúst 2004 Ný stutt vika Dagurinn var hefðbundinn, er búinn að setja upp nýtt programm fyrir mig sem tekur mið að 12 vikna programminu Líkami Fyrir Lífið, búinn að setja mér markmið og er byrjaður strax, öðrum hérna hefur fundist þetta sniðugt og ætla að fylgja með. Vonast ég til að við verðum allavega 5-6 í þessu programmi. Teknar verða myndir, mælingar og allt. Eftir ræktina í dag fór ég í kaffi eftir að vera búinn að taka minn daglega Skyr shake síðan Lunch saltkjöt og kartöflumousse J fór eftri lunch að hjálpa kunningja að kópera og lesa, kláraði bókina Líkaminn fyrir lífið aldrei þessu vant þá gat ég klárað bókina, hefur gengið mjög illa að lesa í gegnum tíðina en er að reyna að taka mig á í þeim efnum. Tókum golfhring fyrir diner (og annan um kvöldið ) eftir fyrri golfhringinn vorum við kallaðir út í smölun en nokkrar kindanna höfðu sloppið út og smöluðum við þeim í réttir og voru þær rýjaðar, skemtileg tilbreyting og eitthvað sem maður hefur aldrei gert áður. Kvöldið fór í golf og mest lítið annað, fékk mér spaghetti fyrir svefnin nþar sem ég var orðinn sársvangur aftur, eftir samlokuna í dinner. Hringdi í Siggu Dögg en hún var með Evu og Marerl ekki að furða að þau svöruðu ekki heima, allt þokkalegt að frétta af þeim, síðan hringdi í ég í Hjördísi og Raggý, allt gott að frétta af þeim. Áður en að ég fór að sofa horfði ég á ½ American Wedding en var farinn að dotta þanni að ég ákvað að fara bara að sofa Dagur 67. 294 dagar eftir Miðvikudagur 4. ágúst 2004 Loksins gott veður 14:37 eftir að hafa lagt mig í smá stund 20 mín þá ákvað ég að hamra aðeins á tölvuna og lesa, í morgun fór ég í ræktina eins og programmið gerir ráð fyrir og gekk allt að óskum. Engin vinna er komin sem fyrr, var ég ekki með nema um 18 bala sl mánuð vona ég að það fari nú að rætast úr því. Einn af félögunum var sendur á Hraunið í gær , mældist í honum lyf sem var ekki leyfilegt, alltaf leiðinlegt þegar svona kemur uppá, fyrsta sinn síðan að ég kom að einhver er sendur burtu. En við minnsta agabrot eru menn sendir burtu, sbr slagsmál, veðmál, áfengisnotkun, lyf eða slæma framkomu við náungann svona einfalt er það. Dagur 68/9 292 dagar eftir fimtud-föstud 5-6 ágúst 2004 Loksins Vinna Aftur Loksins komu nokkrir balar þannig að við höfðum smá vinnu á fimmtud og föstudag annars var lítið um að vera. Heyrði í Írisi og ætlar hún að koma með Evu og Marel um helgina, vona að að það verði gott veður , er virkilega farinnn að sakna þeirra verður öruglega mjög skemmtilegt eins og alltaf þegar þau koma, þetta er eins og jólin fyrir mig , fullt af dóti sem Íris kemur með fyrir mig. Marel er búinn að taka það í sig að við ætlum að kaupa hund og er ákveðin í því þegar ég kem að við ætlum að fara í búðina og velja einn J . Veit ei. Annars er allt búiið að vera fínt, æft á fullu og sýnist mér að menn ætli að taka þessu programmi alvarlega..Best að fara að þrifa og gera allt hreint og klárt fyrir heimsóknina á morgun Hlakka mikið til að fá þau hingað. Dagur 70 291 dagar eftir Laugardagur 7 ágúst 2004 Meiriháttar heimsókn. Vaknaði um kl 07, var þá klukkan aðeins og snemma til að vippa sér á fætur lagði mig aftur og vaknaðið þá um kl 10. Fór í ræktina og gerði ráð fyrir að þau kæmu ekki fyrr en um kl 11,30 en þau byrtust um kl 11 þannig að ég var varla búinn að æfa þegar þau komu, öll í hörku góðu skapi og ég að sjálfsögðu hæstánagðastur að fá þau. Marel lék náttúrlega á allsoddi, þurfti að sannasig aðeins í ræktinni og fanst mér það bara mjög gott hjá honum að taka 4mín sprett á brettinu á hraða 8 fyrir 5 ára snáða og átti helling eftir, fór síðan dagurinn mest í að sinna honum enda finnst honum meiriháttar gaman að kíkja í sveina, elta kanínurnar, fara niður í fjöru og henda steinum, róla, fótbolta , lita og fórum við að hjóla, rákumst á hesta í girðingu og lét ég þann stutta á bak, var hesturinn svo gæfur að hann hreyfðist ekki, hjóluðum til baka þá var kominn tími til að fara heim fyrir þau. Eva er alltaf jafn falleg, spiluðum við og alltaf nær hún að vinna mig í trivial pershut enda fær hún barna spurningar en ég fullorðins, ekki sangjarnt fyrir mig finnst mér. Henni þykir orðið gaman í snoker og er að ná laginu á því svona smátt og smátt. Íris mín var bara nokkuð þreitt enda ekki að marka um leið og þú kemur hingað langar þig bara að fara að sofa, andrúmsloftið er svorólegt og þægilegt. Hún horfði á dvd meðan ég og krakkarnir lékum okkur, kom hún nú aðeins með okkur út, náðum við nú ekki neitt að spjalla saman að viti þar sem litli gaur þarf víst heldurbetur athygli, skil það vel. Íris hafði búið til handa mér lasagna og Indverskan rétt sem hún kom með frosið, þarf ég þá bara að hita það upp í micro. Meiriháttar sætt hjá henni einnig keypti hún slatta af ávöxtum, skyr, juce og þh. Finnst mér hún meirháttar að nenna að koma hingað aðra hverja helgi og vera að versla svona fyrir mig. Margir fá ekki einusinni svona oft heimsóknir frá mökum sínum. Eftri kvölmat las ég blöðin og kláraði svo æfinguna sem ég gat ekki klárað í morgun, 1 klst í viðbót og var tekið hrikalega á...síðan var bara chillað, fengið sér kaffi, reyktan lax og fíneri..farið að sofa um miðnætti ens og reglur fara frammá..Hrikalega sáttur vð daginn.. Dagur 71/2 288 dagar eftir Sunnudagur /mánud 7-9 ágúst 2004 Rólegheit og góð hitabylgja 23:34 mánudagskvöld; Eftir að hafa legið í leti í gær horft á nokkrar myndir og gert alls ekki nett þar sem sunnudagur er frídagur í ræktinni, var bara slappað af, hringdi annars í Sigga Hall og óskaði honum til hamingju með föstudaginn en kallinn átti afmæli þá, spjölluðum vel saman heyrði líka aðeins í Svölu alltaf sama hasarinn hjá henni, í nógu að snúast. Hringdi í Siggu Dögg mjög gott í henni hljóðið en hún var í matarboði þannig að ég var nú ekki að hafa spjallið og langt. Um morguninn mánudag fór ég og æfði aðeins, síðan í göngutúr, sá að kanínunum er búið að fjölga aðeins. Frétti síðan að Garðar Örn, Siggi kokkanemi og Arnór kitchen maker ætluðu að koma, verður stuð að fá þá í heimsókn. Hringdi í millitíðinni í fangelsismálastofnun til að ath hvernig stæði með seinna málið mitt, á eftir að ákveða hvort að það verði kært eða ekki? Um kl 16:00 komu svo strákarnir í ferlegu stuði höfðu hérumbil vilst en komust þó heilu og höldnu, meira stuðið á þeim verst hvað þeir gátu stoppað stutt, en við náðum að taka smá golf tapaði fullt af kúlum en þær finnast þá bara síðar. Íris hafði tekið til helling af fötum af Garðari sem ég var búinn að biðja hana um að athuga til að gefa ungum dreng herna sem á ekkert af fötum og má segja að enginn ættingi heimsækir, pabbanum finnst það og langt ( og mamman er að vinna öll kvöld. Hann var rosalega ánægður með öll fötin og fór strax að máta og syna sig...það þarf oft ekki mikið til að gleðja aum hjörtu....Um kvöldið hringdi Íris og var bara hress, hafði hún verið að vesenast í Ásbirni lögfræðing um málið og sagði hann að það væri ekki neitt hægt að gera til að stytta málið, erum við á báðum áttum hvað við eigum að gera við fyrirtækið allt of langur tími fyrir Írisi að reka það ein, má hrósa henni fyrir hvað hún er dugleg að standa í öllu þessu meðan ég er í leti lífi í sveitinni. Einnig hringdi Hildigunnur systir og er hún nýbúin að eignast Strák, sagði mér einnig að Þórunn systir væri líka búinn að eiga átti hún líka strák sl laugardag fyrir viku..óska ég þeim báðum til hamingju með gaurana sína. Gaman að fá svona hringingar. Kvöldið fór nú síðan bara í það að horfa á tw, og gera mest lítið..það er víst beitning á morgun þannig að það er vissara að fara að sofa.. Dagur 73/4 286 dagar eftir Þriðjudagur /miðvikudagur 10-11 ágúst 2004 Enn hitabylgja “syntum í sjónum” 23:56 miðvikudagskvöld; i dag og gær gerðum við lítið annað en að slæpast,var reyndar smá vinna í gær en engin í dag, dagarnir má segja voru samfelldir sól, hiti og letilíf, að sjálfsögðu hélt maður sig við programmið og æfði á fullu, gat varla labbað í gær og í dag útaf fótaæfingunni á mánudag. Er núna fyrst að verða góður en sem betur fer er brennsla á morgun og ef að veðrið verður svona ( reyndar spáð framm yfir helgi) þá hleyp ég úti og læt pumpuna ganga, Í dag fórum við í öllum hitanum út í sjó og syntum helling var mjög kaldur sjórinn sumsstaðar þar sem straumur var, létum það náttúrulega ekki á okkur fá, síðan var bara legið í sólbaði, lesið og rétt fyrir kvölmat teiknaði ég aðeins, er að æfa mig í því. Kvöldið fór í að æfa, mamma hringdi allt í góðu hjá þeim, systurnar voru þar smá grill partý. Þega ég var búinn að horfa á tw einso pg ég nennti þá fórum við í snoker síðan á “videoleiguna” og fékk disk red dragon var ekki búinn að sjá hana eins og margar aðrar myndir. Á morgun þyrfti ég að hringja í Írisi og ath hvort að hún geti ekki komið um helgina með krakkana þar sem veðrið er svona gott, einnig þarf ég að hringja í lögfræðinginn og ath hvernig staðan er á seinna málinu mínu. Annars er ég bara þokkalega góður, læt hvern dag nægja í einu og tek þessari veru hérna bara eins og best er hægt. Finnst samt erfitt þegar maður kveikir stundum á sjónvarpinu og barna efni er sýnt, veit maður að á sama tíma er Marel að horfa á nákvæmlega það sama. Þetta er það versta í þessu að vera svona dreginn frá krökkunum L . Einn félagi okkar er að fara að skýra fyrsta barna-barn sitt í höfuðið á sér, Hringdi dóttir hanns í yfirvaldið og bað um dagsleyfi fyrir hann eð því var neitað. Hann fær ekki leyfi til að vera viðstaddur. Frekar fúlt. Finn til með honum.......Ætla að horfa á myndina og fara síðan að sofa. Dagur 75 285 dagar eftir Fimmtudagur 12 ágúst 2004 Chill out Enn einn dagurinn sem maður gæti ekki trúað að kæmi á Íslandi svona í röð, það er búið að vera svona meiriháttar veður síðan á mánudag og á að vera framm yfir helgi. Dagurinn fór í það að liggja í sólbaði og lesa, las í bókinni Sálfr. Einkalífsins um kynjaímindina og hvernig týpur við erum og afhverju það getur skapast, merkilegt nokk. Fórum í sjóinn syntum helling og löbbuðum meðfram ströndinni eins langt og við máttum. Spilað var golf , fótbolti og snoker hvað er hægt að biðja um það betra, jú að fjölskylda mans væri með og fengi að njóta þess að busla í sjónum og hlaupa í heitum sandinum með forvitnum sel sem áhorfanda. Ég er orðinn þeldökkur væri ekki dekkri þó að ég væri að koma frá Spáni.. klukkan er 23:28 og ætla ég að klára að horfa á myndina sem ég byrjaði á í gær Red Dragon og fara síðan að sofa það er víst smá beitning á morgun, Ekki getum við nú búist við að það fari að aukast beitningin hjá okkur þar sem vélin í hinum bátunum sem við höfum verið að beyta fyrir brann á hafi úti , heppnir að ekki fór verr....ég gleymdi að segja frá því að ég fékk bréf frá Írisi minni, sætt hjá henni að gefa sér tíma í að skrifa manni nokkrar línur.... Dagur 76 284 dagar eftir Föstudagur 13 ágúst 2004 Enn ein helgin Vaknaði fyrir 07, sett í eina vél og gerði mína bala, var búinn rétt fyrir 11, tók þá úr vélinni og setti í nýja fór svo að æfa. Guðbjörg er kominn aftur í eldhúsið og þarf maður víst aðfara að passa sig, hún er rosalega góður kokkur og höfum við allir saknað hennar. Dagurinn fór nú aðallega í það að liggja í leti, spila golf, lesa og þh. Tók reyndar um kvöldið heljarinnar magaægingu. Um kvöldið hringdi Íris og átum við fínt spjall saman, er hún dugleg að muna eftir að hringja þegar það má. Krakkarnir eru úti um allt Garðar að vinna, Eva í Vindáshlíð og Marel fór í sveitina með ömmu og afa. Ætlaði að horfa á Hanibal en hafði ekki orku í það heldur steinsofnaði.. Dagur 77 283 dagar eftir Laugardagur 14 ágúst 2004 Surprice Vaknaði við að það var ruðst inn í herbergið mitt, hafði reyndar vaknað fyrr um morguninn en sofnað aftur. Var ekki mín gamla mætt á svæðið, ákvað að gera sér ferð að tékka á þeim gamla. Höfðum við loksins tíma til að spjalla saman í friði og tókust nokkuð góðir sættir hjá okkur og er nú bara að sjá hve framvindan verður. Munar helling að fá hana svona í heimsókn og geta spjallað saman. Um kl 14 kom svo Bjössi vinur okkar frá Kef í heimsókn og var í rúma 2 tíma, langt síðan að ég hef hitt hann og gaman að fá svona óvænta heimsókn. Hann fór á unda Írisi og hún síðan ca um kl 16, þurfti að fara að vinna. Finnst hún heldur góð að nenna að keyra í 3+3 tíma það mundu ekki allir nenna því. Allavega er ég mjög ánægður með daginn. Eftir að hún fór var maður fullur að orku enda búinn að ákveða að BRENNA heling í dag og bæta metið mitt að hlaupa að hliðinu og til baka 2,2 km metið mitt hingað til er 10,30 mín og ætlaði ég mér að ná því undir 10 mín. Viti menn ég náði því á 9,35 sem ég held að sé bara mjög gott, var svo ánægður með það að ég tók 20 mín í viðbót á brettinu um 3,5 km og ætti ég þá að vera búinn að brenna nóg í dag. Mjög sáttur við þennan árangur.Um kvöldið bað Guðbjörg mig um hjálp í elhúsinu, ekki málið og var ég með þeim í smástund og síðan spjölluðum við um daginn og veginn á eftir, virkilega gaman kann virkilega að meta þau hjónin Guðbjörgu og Geira. Kvöldið fór síðan bara í osta, spjall og þh.. náði loks að horfa á Canibal og fór síðan að sofa... Dagur 78 282 dagar eftir Sunnudagur 15 ágúst 2004 Leti again Vaknaði á skikkanlegum tíma, horfði á 101 Reykjavík, fór í lunch síðan um kl 14 komu mamma, pabbi , Gizzur og Svana stoppuðu þau í ca 3 tíma spjölluðum um daginn og veginn en þau voru að koma úr ferðalagi sem þau lögðu af stað í á föstudaginn. Annars var ég bara í leti og jú tók mig til og er byrjaður aftur á uppskriftunum mínum, sá að það er hellingur eftir, Fór í einn golf hring, horfði ekkert á sjónvarpið. Þarf að fara að sofa núna þar sem það voru að detta inn balar á morgun er með 2 stóra en ætla mér að vera búinn með þá fyrir hádegi..getur verið að við förum að labba á fjall á morgun, ef ekki þá er ég allavega með æfingarplan og svo uppskriftirnar........ Dagur 79/80- 281/280 dagar eftir Mánudagur/þriðjudagur 16/17 ágúst 2004 Ágætis vinna Í gær og í dag var fín vinna eða þannig var með 4 stóra bala í gær og 2 í dag síðan er ég með 2 bala aftur á morgun. Ágætis aurar fyrir það. Var ekki búinn að vinna fyrr en um kl 17:45 fór þá í dinner horfði aðeins á sjónvarpið og síðan að æfa, hringdi í Írisi tékka aðeins á fólkinu alt+lt þokkalegt að frétta þau ætla að kíkja um helgina , spáð er svona góðu veðri framm yfir helgi þannig að það verður í nógu að snúast..hlakka til að fá þau öll í heimsókn er einnig búinn með allt skyrið verð að kaupa á svörtu (djók ) á morgun einnig er ég að vera búinn með ávextina, alltaf allur í hollustunni..Var búinn að vinna um hádegi í dag var óvana lengi þar sem ég lenti í að hjálpa til í flækjum hjá öðrum, náði samt að klára fyrir hádegi. Eftir lunch fór ég að æfa (brennsla )og síðan út í sólina, las og svaf alveg dásamlegt var alveg framm að kvöldmat. Eftir dinner horfði ég aðeins á körfu á Ólumpíuleikuna Usa – Grikkland fór síðan aftur að æfa ( maginn ) horfa á tw og síðan bara að sofa, heyrði því fleygt að von væri á öðrum kanditat hingað á morgun......... Dagur 83 277 dagar eftir Mið-Fimt-Föstud 18/19/20 ágúst 2004 Róleigheit enn 23:06 föstudagskvöld. Sit hér og hlusta á Bubba Mortheins, gamla slagara með honum, dagarnir eru búnir að vera langir eða þó, smá vinna á miðvikudag en engin í gær og í dag, veðrið ekki neitt sértakt í gær og í dag þannig að ég notaði daginn til að halda áfram með uppskriftirnar, og gengur það ágætlega, verður öruglega mjög gott safn þegar yfir líkur. Maður er bara búinn að halda út æfingar programmið, missti mig aðeins í gær og tók óvart tvær brennslu æfingar, ætlaði bara að taka magan um kvöldið og fór aðeins á brettið endaði í 20mín 3,50km. Ídag er ég búinn að vera að taka til, ekki að það sé mikill skítur og óreiða en á föstudögum á ég þvottardag og nota ég þá daginn til að þrífa herbergið líka í leiðinni, einnig á ég líka von á heimsókn frá Írisi, Marel og kannski Evu en hana langaði til að fara á menningardaginn í Rvk. Á morgun. Raggý systir átti afmæli í gær og Eva mín á afmæli á sunnudaginn fúlt að komast ekki í nein svona hefðbundin boð. Heyrði í Írisi í vikunni og er hún að vinna á fullu í þessum fangelsismálum að ath hvort að það sé ekki möguleiki á “einhverju” er hún búin að fá gott fólk til að skoða málið aðeins, án nokkurra ábyrgða, finnst ekki rétt að nafngreina neinn að svo stöddu. Hún sagi mér einnig fréttir af Soho er búið að vera nokkuð gott að gera og þessir hefðbundnu árextrat eins og gengur og geris á svona vinnustað. Einnig hringdi ég í minn lögfræðing vegna seinna málsins sem á eftir að taka fyrir, hringdi hann strax til baka og fær að vita meira á mánudaginn þar sem sá dómari/lögfræðingur sem er með málið kemur þá úr fríi. Vona að þeir geti sameinað þessi mál svo að ég fái ekki í það minnsta 6mánuði til viðbótar. Vona að veðrið verði gott á morgun þegar þau koma ætla þá að leyfa þeim að busla aðeins í sjónum ef að veður leyfir. Reikna með að þau komi frekar snemma,þannig að það er best að vera vaknaður og kominn í fötin þegar þau koma, ekki eins og þegar Íris kom seinasta laugardag “óvænt” var ég enn í beddanum. Var að reikna út nokkrar dagsetningar fyrir mig til að skoða hvernig staðan er miðað við að ég losni með árið. 26/8 er ég búinn með ¼ 24/11 er ég búinn með ½ 22/02 er ég búinn með ¾ og ætti að komast á vernd 23/05 ætti ég að vera laus Svona lítur þetta út miðað við mína útreikninga, það á engin stitting að koma til þegar maður situr í skuldafangelsi, annars þyrfti maður bara að sitja inn ½ af dómnum ef að maður stolið frá öðrum en ríkinu..þíðir nú lítið að svekkja sig á þessu. Ætla að láta þetta duga í bili, líður annars bara nokkuð vel, æfingarnar hjálpa mikið til, einnig hvað allir eru jákvæðir og félagarnir standa þétt saman og stiðja hvorn annan þegar menn detta í eitthvað þunglindi, auðvitað kemur það fyrir alla við þessar aðstæður.. Skyrslu lokið kl 23:35 Dagur 85 275 dagar eftir Laugard-sunnud 21/22 ágúst 2004 Enn ein helgi 10:35 mándudagur. Á laugardaginn komu Íris, Eva og Marel, áttum við skemmtilegan dag , Marel náttúrelga á fullu allan daginn, held að við höfum gert allt sem hægt er að gera, til dæmis, fjaran, fótbolti, hjóla og æfingasalurinn, Eva var nú rólegari tókum einn snóker og var þá litli gaur ekki sáttur. Íris kom með pulsur og hamborgarra , grilluðum við það og fengum okkur late lunch.. veðrið var mjög gott og var rosalega þetta bara rosalega skemmtilegur dagur. Kvöldið fór nú fyrir lítið nennti ekki að æfa , slappaði bara af og horfði á tw. Vaknaði fyrir 9, hringdi í Evu þar sem hún á afmæli í dag spjallaði við hana og þau öll. Sunnudagurinn er tw dagur, ætlaði að fara að æfa um morguninn en var meinaður aðgangur að salnum, meigum víst ekki byrja að æfa fyrr en kl 14:00 þannig að ég skokkaði bara í staðinn, ca 5 km... sunnudagurinn er algjörlega leti dagur , gerði ekki neitt eftir lunch horfði á nokkrar myndir, vann í tölvunni hópmatseðil fyrr Soho, tók síðan einn snóker og síðan að sofa Dagur 86/87 274/3 dagar eftir Mánudagur/þriðjudagur 23/24 ágúst 2004 Nú er haustið að koma. 00-01 þriðjudagskvöld Er að undirbúa mig að fara að sofa, gærdagurinn var algjör leti, fékk þó hringingu frá fangelsismálastofnun um það að seinnamálið mitt yrði afgreitt í byrjun sept, ok það er þá í einhverju ferli, einnig hringdi í mig gamall blaðamaður Þórarinn sem gaf út vikuna fyrir mörgum árum síðan og vildi fá að gefa út með okkur nokkrum kokkunum uppskriftir sem við gerðum fyrir þá á þeim tíma, hann kemur sennilega hingað í vikunni og athugar málið. Síðan fór ég í ræktina, horfði á tw , í gærkveldi fórum við í Monopoly og var það meiriháttar gaman spiluðum til miðnættis en vorum þá reknir inn að sofa, fyrr um kvöldið hafði Íris líka hringt, allt gott að frétta þaðan.. fór svo að sofa. Í morgun fór ég að vinna, að gera við fiskikör, síðan að sjálfsögðu að æfa. Seinnipartinn hjálpaði ég aðeins til í elhúsinu voða gaman. Eftir það fór ég í tölvuna halda áfram í uppskriftunum. Hringdi í Siggu mína allt í góðu hjá henni brjálað að gera, er virkilega stoltur af henni rosalega dugleg og ákveðin að koma sér áfram..nú ætla ég aðeins að horfa á Kill Bill (no 1) og fara svo að sofa.... Dagur 88/9 272/1 dagar eftir Miðv-fimmtud 25/26 ágúst 2004 Búinn að afplána ¼ af heild. 22:22 fimmtudagskvöld; sit nú og er að hita mér te (kamillu) hlusta á night music (clasic) svona fyrir háttinn, var að koma úr sturtu eftir freka mikla maga og brennslu æfingu hér rétt áðan, dagurinn í dag fór annars í það að beita 2bala í morgun slá aðeins til í múrblöndu, hjálpa til í eldhúsinu og skrifa nokkrar uppskriftir.......meðal annars pabbi á afmæli í dag, hringdi í hann og var hann með matareitrun..vona að það verði nú ekki neitt alvarlegt. Hringdi í Írisi hún var með fúlar staffafréttir frá Soho...hringdi í Raggý og spjallaði við hana aðeins einnig stelpurnar en þær voru í heimsókn hjá ömmu sinni En Raggý ætlar að reyna að kíkja þarnæstu helgi á sunnudeginum með Siggurósu með sér, verður gaman að hitta þær vinkonurnar. Í gær má segja að dagurinn hafi verið svipaður og í dag , beita, æfing eldhúsið en gerði ekki neitt um kvöldið, hékk í tölvunni og horfði síðan á tw og að sofa..vakna alltaf á næturnar við það að það eru komnar nokkrar rollur að jarma fyrir utan gluggan hjá mér, frekar pirrandi. Íris hringdi um kvöldið, með ýmsar fréttir, fór á fund með fangelsismálastjóra, og fékk svör við sínum spurningum þar..No comment.. Talaði aðeins við Marel og sagði honum meðal annars frá naggrísunum sem okkur áskotnaðist hér í gær, var hann spenntur að sjá þær næst þegar þau koma en þau komast ekki næstu né þarnæstu helgi þar sem þá er Ljósanótt í Kef og í nógu að snúast..Ætla að slá inn nokkrar uppskriftir og fara svo að sofa nóg af bölum á morgun. Dagur 90-1-2 270/9/8 dagar eftir Föstud-laug-sunnud 27/28/29/ ágúst 2004 Róleg helgi 00:18 Sunnudagskvöld. Það var fín vinna á föstudaginn var ekki búinn fyrr en um kl 17; fór þá að hjálpa til í eldhúsinu, tók mér frí frá æfingu fór snemma að sofa. Laugardagurinn; tók til í herberginu fékk óvænta heimsókn um kl 14 Margeir, Sverrir og Sveinbjörn komu voru á leiðinni á fótboltaleik í mosfellsbæ en ákváðu að fara frekar í heimsókn í jale house, var rosalea gaman að fá þá í heimsókn var mikið spjallað, drukkið te og kaffi og teknir nokkrir snokerar, fóru þeir síðan aftur heim um kl 17. fór þá að æfa og síðan að skrifa uppskriftir.. Sunndagurinn var tekinn snemma var vaknaður kl 8. fór að æfa og síðan að skrifa uppskrifir, um daginn kom Þorarinn útgefandi, vikunnar og fleiri blað , er að gera bók fyrir eurocard og ætlar að nota gamlar uppskriftir sem við gerðum í gamladaga þega kokkaklúbburinn okkar Framandi var við líði, spjölluðum mikið og vel saman og fór hann heim um kl 17 ég náði að klára allar þær uppskriftir sem ég var búinn að skrifa niður í gegnum tíðina á nú bara eftir að flokka þetta enn betur niður, og skrifa það sem ég hef ekki komið á blað hingað til. .. Hringdi í Íris var hún með fréttir af soho og er Tómas kokkur heldur betur búinnað mála sig útí horn þar.., Dagur 93 277 dagar eftir Mánudagur 30 ágúst 2004 Haustið komið Það er frekar haustlegt út á að líta núna, rigning, rok og hlusta ég á Chopin vin minn meðan ég er að ákveða hvað ég á að gera næst, er búinn að æfa, engin vinna, leystum úr nokkrum flækjum í morgun svona til dægrastyttingar, var minna en við bjuggumst við. Þannig að næsta mál er hjá mér sennilega að skrifa uppskriftir , einhver bréf og teikna . Annar eru núna fyrst komnir upp pálmarnir sem ég byrjaði á að vesenast með þann 21.júlí kominn um 2 cm upp úr potti og eru að skipta sér yfir í tvö blöð allavega er ég með núna 5 litla pálma sem bíða þess að verða að stórum tréum..Ákvað svo um kvöldið að byrja að MÁLA jú ég byrjaði að mála á pappír svona fyrst til að prufa, bara á ómerkilegan teikniblokk og það bara heppnaðist ágætlega,, var búinn að fá lánaða olíuliti, pensla og þh frá kunningja mínum hérna sem hættur var að nota það,Raggý systir keypti fyrir mig pappír fyrir olíumálningu og lét senda mér seinustu helgi...þannig að ég hafði mig í það að byrja, jú ég var það sáttur við þá fyrstu so fare, er ekki búinn þannig að ég ætla að fara að sofa og klára hana á morgun,Íris mín hringdi í kvöld og var bara allt við það sama, er á fullu við að undirbúa fyrir ljósanætur helgina næstu.......fer að sofa nú.. Dagur 94 276 dagar eftir Mánudagur 31 ágúst 2004 Örn the painter Eða hvað ; þessi dagur að lokum kl er 00:26 á að vera löngu sofnaður en það er svo gaman að mála að maður getur ekki hætt eða þannig, jú ég kláraði myndina frá því í gær í morgun og kláraði aðra fyrir kvöldmat og byrjaði á annari seint í kvöld ætla að klára hana á morgun,, Annars vaknaði ég snemma í morgun eða um kl 07, fannst það fullsnemmt þannig að ég lagði mig aftur og vaknaði þá ekki fyrr en 10:30 dreif mig þá í Brennslu og síðan í lunch.. dagurinn fór nú mest í það sem fyrr sagði og kvöldið í það að horfa á tw. Hringdi heim og talaði aðeins við Evu, erfitt að fá eitthvað uppúr henni, þannig að við töluðum nú ekki mjög lengi saman, gamla var náttúrulega á Bingo..ætla að eins að horfa á tw ef að það er eitthvað skemmtilegt í þvi annars bara að fara að sofa,, æfing í fyrramálið engin vinna öruglega alla þessa viku vegna veðurs..frekar fúlt.. Dagur 133 // 238 dagar eftir Laugardagur 9. okt 2004 Íris, Marel og Eva Komu í dag, en byrjaði daginn á smá vinnu, var kominn inn um kl 9 fór þá að skúra og gera klárt fyrir að taka á móti þeim, var farinn að sakna þeirra allra helling. Eva og íris voru bara í leti á meðan við Marel fórum að skoða naggrísina og labba niður í fjöru,, þegar við komum aftur heim horfðum við að eins á sjónvarpið, fengum okkur kaffi, skúffuköku og sjónvarpsköku sem íris kom með eftir kaffi tókum við snoker ég og Eva var hún búinn að æfa sig í skólanum og var orðin bara nokkuð sleip ( vann mig ) Marel varð að fara aðeins í ræktina og tók hann bara mjög vel á miðað við að vera bara 5ára. Íris vildi farra í fyrra fallinu þar sem veðrið var farið að vera frekar leiðinlegt.. Um kvöldið eftir kvöldmat en í matinn voru núðlur, horfði ég aðeins á sjónvarpið og fór svo að æfa um kl 20 -21,30 fór þá í snoker og síðan að skrifa í dagbókina og ætla mér að fara snemma í háttinn í dag. Betra að vera hress þegar systir kemur í heimsókn á morgun, en Raggý ætlar að kíkja við...alltaf gaman þegar hún kemur og reyndar alltaf gaman þegar maður fær heimsókn.. Dagur 131-2 240-239 dagar eftir Fimmtud og föstud 7-8. okt 2004 Blaðamaður og smá vinna Á fimmtudaginn eftir vinnu þá kom blaðamaður frá víkur fréttum og tók smá viðtal, get ég nú ekki annað sagt en að ég hafi verið á báðum áttum með að láta taka viðtal við mig hérna, en þar sem ég hef ekki neitt að fela, og eftir þessi blaðaskrif er kannski best að rétt sé rétt? Blaðamaðurinn kom um kl 11 og var hér í rúman klukkutíma, tók myndir og skrifaði fullt niður.. eftir hádegi var slappað af farið aðeins í ræktina og þetta venjulega, á föstudagsmorgunninn var vinna hjá okkur og fórum við Haddi síðan í körin og vorum að til kl 17: fórum þá í smá labbitúr og síðan að borða, það voru pylsur í matinn og fékk ég mér bara með grænmeti sinnpi og tómat er búinn að standast alveg þetta kjötbindindi og held að það verði nú ekki mikið mál. Meira að segja var lasagna í hádeginu og fékk ég mér bara salat. Um kvöldið var ég bara nokkuð þreyttur enda ekki vanur að vinna svona langan dag frá 07:30 – 17. fór ekki neitt í ræktina, fékk mér nammi, slappaði af og sofnaði snemma. Dagur 130 241 dagar eftir Miðvikudagur 6. okt 2004 Úlli kom í dag Úlli kom í dag og vakti mig, ég var sofandi eftir lesturinn þegar hann kom, hann kom með fiskinn eins o gað hann var búinn að lofa Tofu laxbollur og sitthvort flakið af reyktum og gröfnum laxi ekki slæmt það. Hann var á hraðferð og gat þess vegna ekki stoppað lengi, en nóg samt, náðum að spjalla ágætlega saman um gamla og góða tíma. Í morgun voru teknir nokkrir balar þannig að ég vona að það verði komið með þá aftur í kvöld svo að við getum unnið á morgun. Annars held ég að ég sé að sætta mig við að þurfa að sitja inni árið, það er að ég verði allavega út tímann hérna framm í feb og fari þá á vernd, vona að það bætist ekki mikið við.. Dagur 128/9 243/2 dagar eftir Mánudagur & Þriðjudagur 4-5 okt 2004 Engin Vinna Alla Þessa Viku Geri ÉG Ráð Fyrir Ég held að síðan að ég kom inn hef ég aldrei verið jafn þungur og nú, þessi réttarhöld um daginn fóru alveg með mig finnst mér hafa enga von um að losna fyrr. Hef losað um þessa spennu hjá mér með að lesa bókina Da Vinci lykilinn og hamast í ræktinni, gefur það góða raun. Á mánudagsköldið ákvað ég að fara í einsmánaðar kjöt byndindi, en má þó borða kjúkling, próteinsins vegna og allan fisk,, er búinn að fá nóg af lambakjöti, það var á sunnudaginn í hádeginu og um kvöldið steikt lambalæri, ekki að það sé neitt slæmt en tvisvar a´dag er kannski fullmikið af því góða.. Veðrið er enn crazy og verður enginn vinna öruyglega fyrr en á fimmtudag í fyrsta lagi, á Fimmtudaginn ætlar einnig Jói á Víkurfréttum að koma og taka smá viðtal við mig. Úlfar Finnbjörnsson kom á þriðjudginum með fullt af ávöxtum, virkilega fallegt af honum, stoppaði hann við í um 2 tíma og höfðum við af nógu af taka.. ætlar hann að kíkja við aftur á morgun með fiskiprufur. Get ég ekki annað sagt að ég er stoltur af mér hvað mér hefur tekist að lesa Da Vincy þessa dagana, ég er ekki vanur að geta lesið svona bækur en þessi bók henntar mér mjög vel þar sem maður kannast við aðstæðurnar þar sem bókin gerist og hefur verið það, ekki bætti úr skák að það var viðtal á stöð 1 við arkitektinn af byggingunni sem er fyrir framan Louvre safnið í parís sem er talað um í bókinn akkúrat þegar ég var nýbúinn með þær síður. Þessi bókk hefur heillaði mig í botn og hef sett allt annað á hold á meðan, Fékk í dag bréf frá Hjördísi frænku, hún er búinn að vera í réttunum og alltaf nóg að gerast í sveitinni, gaman að heyra aðeins í henni. Dagur 127 244dagar eftir Sunnudagur 3. okt 2004 Brjálað veður og verður öruglega framm á miðvikudag Tók mér frí í ræktina í dag , eftir morgunmat fór ég að lesa og las til um 11 hringdi þá í írisi , smá spjall, get ég alveg sagt að ég er ekki enn búinn að ná mér uppúr þessum hugsunum að ég þurfi jafnvel að sitja inni allan tíman + eitthvað meira, það mun alveg gera útaf við mig,, þannig lagað. Hringdi síðan í Raggý systir ætlar hún að kíkja næstu helgi fékk ferðasöguna hjá henni, en hún var í Eglandi í vikunni á námskeiði, gekk allt eins og í sögu nema heimferðin, þurfti að vera auka nótt í London. Dagurinn fór nú bara í það að lesa og horfa á sjónvarpið.. lítið annað að gera... Dagur 126 245 dagar eftir Laugardagur 2. Okt 2004 Pabbi á afmæli í dag. Hef nú vaknað alla morgna snermma og fengið mér morgunmat farið svo að gera eitthvað að viti, byrjaði á að lesa fór svo í ræktina og síðan hringdi ég í Irisi að ath hvernig hefði gengið á Soho í gær og svona bara til að heyra aðeins í þeim.. fór aftur á æfingu um kvöldið. Mamma og pabbi komu rétt fyrir hádegi og voru hérna alveg til rúmlega 17; Pabbi á afmæli í dag og fannst mér hann duglegur að nenna að keyra alla þessa leið á þessum merkisdegi.. Ekki gat ég nú boðið uppá neitt merkilegt með kaffinu annað en kex og kaffi. Horfðum á bikarleikinn og spjölluðum um daginn og veginn..Eftir ræktina um kvöldið horfði ég á sjónvarpið og fór svo að sofa Dagur 125 246 dagar eftir Föstudagur 1. Okt 2004 Nýr dagur með bjartari tíð Nú er ekkert annað í boði en að vera bjartsýnn, þó svo að ég geti að þessa stundina sé það mér ekki efsti í huga, margt kemur upp, alltaf þetta stóra “EN HVAÐ EF” en maður veit að það þíðir ekki neitt að hugsa þannig, heldur að taka hlutunum eins og að þeir eru og bíða og sjá, láta lífið halda áfram.. Hef notað daginn í að fá smá útrás í salnum fór tvisvar í dag, Íris hringdi í morgun og var í sjokki yfir fréttaflutningunun þar sem talað er um að skuldirnar séu um 60. mills en ekki talað um að það var búið að borga inná 48 mills aðeins 12 mills sem standa á milli fyrir Borgina+ 15 mills + álag þannig að í heildina með álagi ætti þetta að vera um 54 mills með álagi fyrir bæði fyrirtækin.. Mamma hringdi um kvölduið og ætla þau að koma á morgun. Bet ahringdi og sendi mér stuðning, ekki veitir af.. annars horfði ég bara á sjónvarpið um kvöldið og fór svo að sofa. Dagur 124 247 dagar eftir Fimmtudagur 30 Sept 2004 Ógeðslega fúll Þá er það öðruvísi dagurinn, jú ég á að fara í dóminn í dag, undirbjó mig um morgunninn á hefðbundinn hátt, morgunmatur, spjall og taka til gögnin, um kl 11 komu drengirnir að sækja mig, fengum okkur að borða fórum síðan um kl 12.15 # kominn til Rvk um kl 14:30 stoppuðum við á hegningarhúsinu og fengum okkur kaffi fórum síðan í Héraðsdóm og tók þá dómurinn við. Íris beið eftir mér og var með mér inni í salnum, Lögmaðurinn missti sig, vildi þvílika refsingu á mig, fyrir síendurtekið brot, farið var yfir málið en ekki var gengið frá niðurstöðu strax það verður gert, þann 12 þm um kl 12.00 guð má vita hvað kemur útúr því, ég er allavega ekki mjög bjartsýnn á allt þetta samfélagsþjónustu mál að það verði að einhverjum möguleika, reikna þessvegna með því að fá árið hér og jafnvel eihnvern auka tíma fyrir brotið. Þegar ég kom síðan í bílinn tók ég eftir að á sakavottorðinu mínu var ekki sami dómur og ég fékk sem var birtur fyrir mér þegar ég fékk síðasta dóm. Hringdi í Ásbjörn en náði ekki á hann, reyni aftur á morgun, hringdi síðan í Írisi og mömmu..var frekar þungur eftir allt þetta og frekar vonlítill ef að ég tala beint frá hjartanu. En ég verð að vona það besta fyrir mig og mína..Er ekki alveg tilbúinn að far að sofa strax..það kemur nýr dagur eftir þennan og allt tekur þetta nú enda.. Dagur 123 248 dagar eftir Miðvikudagur 29 Sept 2004 Fer á morgun í dóm Morguninn byrjaði eins og vanalega fór í beitningu í morgun var að stússast í því til kl 13,30 fór þá inn og að vesenast í tölvunni, Bað Björn um að prennta út uppskriftirnar, er annars bara að bíða eftir morgundeginum.. Dagur 122 249 dagar eftir Þriðjudagur 28 Sept 2004 Nýjar fréttir Byrjaði á að fara að vinna um morguninn í körunum, síðan fékk ég skilaboð að Pabbi hafði hringt, hringdi til baka og náði á Erlu spjölluðum saman og lét þau vit að ég færi í dóminn í næstu viku. Ég var varla búinn að sleppa símanum þegar ég frétti að lögreglustjóri væri að fá staðfestingu á að ég væri hér, fékk síðan tilkynningu um að mæta fyrir dóma og á þá að mæta á Fimmtudaginn í þessari viku í staðinn fyrir í næstu.. viku fyrr en ég hafði búist við.. einnig fékk ég bréfið frá Reykjanesbæ um að þeir ætli að útvega mér vinnu við samfélagsþjónusu óski fangelsismálayfirvöld eftir því..bíð nú spenntur yfir frammhaldinu á þessu öllu.. Dagur 121 250 dagar eftir Mánudagur 27 Sept 2004 Sumir orðnir 41. í dag Dagurinn byrjaði venjulega, fyrir utan hvað þetta var rosalga fallegur dagur, heiðskýrt, glampandi sól og smá morgun frost. Fór í beitninguna, var búinn það um kl 10:00 fór þá út að skokka, fór svo í slainn til að æfa og viti menn, aldurinn færðist yfir og ég nennti ekki að æfa, gaf mér frí fór sturtu og gerði mig klárann í lunch. Strax eftir lunch kom Albert minn gamli æsku vinur og var hér til kl rúml 16:00 spjölluðum við um daginn og veginn eins og við er að búast af svona gamlingjum. Um kl 17: komu þeir félagar Steinþór Jónsson Hotel Keflavík, Axel Jónsson Matarlyst, Ingó Langbest og Ási gamli nemin minn og nú á Ruby Teusday, komu þeir færandi hendi með skreytta tertu með þjöl innií, einnig fullt af nammi og öðru slíku, áttum við hörku skemmtilega stund saman skipst var á sögum og þessháttar, svo gaman var hjá okkur að ég gleymdi að bjóða þeim eitthvað að drekka, vona að þeir hafa ekki verið fúlir útí mig útaf því.. merkilegt hvað maður finnur stuðning hjá mörgum og hvað svona heimsóknir gefa manni mikið.. það er búið að stofna samtök í kef Veitingamanna og er bara beðið eftir mér til að geta sett það á laggirnar endanlega.. J , ‘i morgun fékk ég fréttir að það væri kominn dómari með málið og að hún ætlaði að taka það fyrir í næstu viku.. Heyrði einnig í dag í Mömmu og Pabba, Íris hringdi um kvöldið einnig Beta og Sigga Dögg..kvöldið fór nú aðallega í það að borða nammi, harðfisk og horfa á tw Dagur 120 251 dagar eftir Sunnudagur 26 Sept 2004 Allt öðru vísi dagur Vaknaði snemma, horfði á sjónvarpið fór síðan aðeins að brenna, kenndi Guðbjörgu að brenna sykurinn á desertinn. Eftir lunch bauð Geiri mér á rúntinn niður í Grundarfjörð að skoða veitingastaðinn þeirra, tókum smá auka rúnt um bæinn, virkilega skemmtilegur lítill bær. Þega ég kom til baka var verið að spila undanútslitarleikinn í fótboltanum, kláraði að horfa á það, Keflavík vann. Eftri kaffi lagði ég mig og kvöldið fór bara í tölvuna og að gera sem minnst.. Dagur 119 252 dagar eftir Laugardagur 25 Sept 2004 Heimsókn Um kl 11 komu Íris, Eva og Marel áttum við meiriháttar dag það var náttúrelga eltst við kanínuranar , naggrísina og svo í restina reyndi hann að ná kindunum það var nú soldið erfitt þær eru nú víst anðeins sneggri en hann að hlaupa . Við Eva fórum í snoker hún er að verða bara nokkuð sleip í snoker. Evu fannst einnig gaman að vesenast í dýrunum. ‘iris slappaði bara af, lagði sig og horfði á sjónvarpið. Leið og Marel kom vildi hann fá að borða hjá Guðbjörgu, fékk hann það borðuðum við fisk og kláraði hann allan sinn fisk, var mjöt duglegur þakkaði síðan fyrir sig og sníkti útúr Guðbjörgu smá grænmeti til að gefa dýrunum og fékk það að sjálfsögðu. Eins og áður sagði var þetta bara enn einn góði dagurinn hér hjá mér, alltaf gaman að fá fjölskilduna í heimsókn. Fór að æfa um kvöldið sló mitt persónulega met í bekknum tok 115kg og er búinn að þýngjast í 84 kg eru það bara um 8 kg síðan að ég kom inn fyrst. Hjálpaði og kenndi Guðbjörgu að búa til Creme caramel sem að við ætlum að hafa í desert á morgun í hádeginu. Horfði svo bara á sjónvarpið um kvöldið og gerði sem minnst. Dagur 114-118 258-253 dagar eftir Mánudagur - Föstudag 20 - 24 Sept 2004 Brjálað veður Tek saman nú mánudag – föstudags enda ekki neitt þrusu búið að gerast. Þó það að ég er búinn að fá dómara í seinna málinu, heiti hún Ingveldur Einarsdóttir hringdi í hana í gær en náði ekki í gegn, tekin voru skilaboð en síðan fór rafmagnið af hérna þannig að það gat enginn hringt inn í 4 tíma veit ekki hvort að hún hefur svarað á þeim tíma. Hringi aftur á mánudag og ath hvort að ég næ ekki inn , er að reyna að fá dagsetningu á dómnum til að geta fengið að sækja um samf.þjónusu kemur allt í ljó á næstu vikum. Í vikunni fékk ég bréf frá vinu mínum Val Ketils og frænku minni Hjördísi í sveitinni alltaf gaman að fá bréf frá þeim, Valur sendi mér hellings veiðisögu sem hann skrifaði fyrir veiðitímarit. Annars var vikan frekar viðburðalítil, dagarnir liðu áfram eins og vera ber, hef nú alltaf samt náð því að drífa mig á fætur um kl 07 í morgunmat og síðan inn aftur að lesa eða hreinlega bara sofnað, er búinn að taka mér einn dag frí í ræktinni, en er búinn að fara nokkrum sinnum tvisvar á dag, er það að svín virka klst í hvort sinnið. Það var smá vinna hjá mér á fimmtudag og föstudag annars vorum við bara að slæpast alla vikuna. Mikki átti afmæli þann 23 og var sungið honum til heiðurs..frumsamið lag og alt. Það kom sendinefnd frá fangelsismálastofnun og tók viðtal við þá sem það vildu, bara hið besta mál.Allir sammála um að það er allt of lítil vinna og er verið að vinna í því að búa til heildar lausn fyrir þessa stofnun hérna, margt sem þarf að skoða og endurbæta. Raggý systir hringdi og er hún að fara til Englands í dag á vegum vinnunnar, fyrsta sinn sem henni er boðið svona eitthvað, meiriháttar fyrir hana. Síðan er ég búinn að vera í samandi við Íris alla vikuna, nema í gær þá hringdi Beta frænka, alltaf gaman að heyra í henni, hún ætlar að reyna að koma með Raggý systir þarnæstu helgi. Steinþór Jóns og fleiri félagar í brannsanum ætla að kíkja á mig á mánudaginn, tilviljun örugglega ein réð því að það hitti á afmælisdaginn minn (41) en verður það öruglega mjög skemmtilgt að fá þá í heimsókn. Steinþór hringdi í Villa forstöðumann og fékk leyfi hjá honum var það ekkert mál hlakka mikið til. Ég á von á að í dag komi Íris, Eva og Marel fer eftir veðri hvort að hún þori að keyra, það er búið að vera hundleiðinlegt veður og ekki von á öðru , ástæðulaust fyrir hana að vera að þvælast þetta í þannig veðri. Dagur 113 259 dagar eftir Sunnudagur 19 Sept 2004 Óvænt heimsókn í dag Fékk mér morgunmat um kl 07:30 síðan aftur uppí bedda, lesa og horfa á sjónvarpið, eftir lunch fór ég að æfa tók bara brennslu, var ekki alveg með sjálfum mér í dag, ekki alveg tilbúinn að fara að hamast eitthvað, enda er allt í lagi að taka það róleg í 1-2 daga í viku,, hékk á klifurvélinni í 35 mín og lét það duga, fór í kaffi. Komu þá óvænt eða allavega hringdu þau í gær og létu vita en ég fékk ekki skilaboðin, Pabbi, Erla og Sigrún frænka var virkilega gaman að fá svona óvænta heimsókn, að sjálfsögðu fékk ég í ávexti og skyr ásamt lesefni og fleira í búið en það er akkúrat það sem mig vantar ef að einhver á leið hjá. Pabbig hitti vel á bók fyrir mig, eins og flestir sem mig þekkja þá er ég ekki mikill lestrarhestur, en hann gaf mér Davinci lykilinn á Íslensku, hlakka mikið til að byrja á að lesa hana. Við pabbi Gulli keyptum hana í gegnum netið í vetur og var hann alveg dolfallin yfir henni eins og flestir sem ég þekki og hafa lesið hana. Fékk að sjá myndir af litlu frændum mínum, myndarlegir drengir það hlakka til að fá að sjá þá “bráðum vonandi” sýndi þeim aðstöðuna og spjölluðum við heilmikið saman, virkilega sætt af þeim að kíkja svona á “svarta sauðinn”.. Eitthvað er ég búinn að vera skrítinn í maganum seinnipartinn í dag, smá svona flensu fílingur, nenni því nú varla verð að æfa það úr mér á morgun ef að ég verð ekki orðinn hressari þá( æfi hvort eð er ). Horfði á sjónvarpið um kvöldið og vesenaðist aðeins í tölvunni.. fer vonbráðar í háttinn og bíð spenntur eftir nýjum degi.. Dagur 112 260 dagar eftir “BÚINN MEÐ 4 MÁNUÐI, 16 VIKUR” Laugardagur 18 Sept 2004 Engin heimsókn um helgina Það getur oft verið bara ágætt að vera einn með sjálfum sér á svona helgi dögum,. Eftir að hafa fengið mér morgunmat , las ég í bókinni samræður við guð no 2, hef verið að grípa í hana sl. mánuð svona 5-10 bls pr dag. Sofnaði svo út frá henni, eftir mat fór í í ræktina var ekki alveg með sjálfum mér þanni að ég tók bara smá brennslu í 40 mín og aðra æfingu um kvöldið í staðinn.. annars gekk bara lítið á í dag, veðrið ekki nógu gott, ágætis erill var í húsinu.. og allt í þokkalegu standi. Dagur 111 261 dagar eftir Föstudagur 17 Sept 2004 Venjulegur föstudagur Lítið að gerast, gerði ekki neitt má segja allan daginn, gerði það sem gera þarf, ræktin, snoker og þess háttar. Fór annars bara snemma í háttinn. Dagur 110 262 dagar eftir Fimmtudagur 16 Sept 2004 Hringja út um allt! Vaknaði snemma eins og vanalega, átti nú soldið erfit með að koma mér frammúr en það hafðist nú samt. Dagurinn var frekar einkennilegur, byrjaði með morgunmat og hringdi út um allt, tíl Hérðasdóm, og er málið komið þangað og býður dags getiur tekið 1-3 vikur síðan á eftir að dæma í því og getu það þá tekið aðrar 2-3 vikur þá ætti ég að geta sótt um samfélagsþjónusu og gæti það þá tekið aðrar 1-2 vikur veit ei. Síðan hringdi ég í Bæjastj, í Reykjanesb, uppá að ábyrgjast mig með vinnu í samfélagsþjónustu í kef, síðan í Siggu og var allt ágætt að frétta af henni. Eftir hádegi kom Úlli kokkaastrákur og var hann hér allavega í 2-3 tíma, skildi síðan eftir þvílikt magn af mat að við eigum nægan mat langt framm yfir helgi. Nýr drengur kom í dag. Kvöldið var rólegt, ég fór aðeins í snoker en annars bara leti, fór ekki einu sinni á æfingu.. allt í lagi öruglega að slappa af einn dag í viku.. Dagur 109 263 dagar eftir Miðvikudagur 15 Sept 2004 Sláturtíðin hafin á bryggjunni Vaknaði snemma eins og vanalega, en sá fallegi dagur þó svo að það sé spáð stormi og brjáluðu veðri þá var þetta minn dagur þegar ég vaknaði, einkennilegt hvað maður getur ákveðið þegar maður vaknað að maður ætli að eiga frábæran dag.. Fór í morgnumat borðaði ½500gr dós af skyri og fór síðan að beita, þegar ég var búinn að koma því öllu í stand. Fór ég að hjálpa til við slátrun, hef aldrei komið að því áður, frekar ómerkilegt en samt eitthvað sem maður verður að fá að upplifa. Ég var í því að hluta í sundur inniflin, einkennilegt að taka á inniflunum svona heitum , en þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig og vorum búnir um hádegi, fór þá í beitningarskúrinn okkar og hjálpaði við að ganga frá og þessháttar. Síðan fór seinniparturinn í að slæpast, snoker hjálpa til í eldhúsinu og þh. Eftri dinner fór ég að stússast við að gera plan fyrir beitninguna.. Eftri símatíma fór ég í ræktina og tók handleggina í öreyndir..Reyndar hringdi Íris og spjallaði um daginn og veginn, er að fara til Danmerkur með körfuboltaliðinu í Kef og verður framm yfir helgi. Dagur 108 264 dagar eftir Þriðjudagur 14 Sept 2004 Beta á Afmæli Byrjaði daginn á að fá mér morgunmat og vekja Betu frænku en hún var að sjálfsögðu löngu vöknuð, spjallaði við hana , hún er alltaf svo hress og indisleg. Fór síðan að vinna í körunum ætluðum að vera búnir fyrir lunch en náðum ekki að klára fyrr en um kl 15: fór þá á æfingu með Mikka og tókum við magan í tætlur. Kvöldið fór nú bara í lítð, jú íris hringdi og var hissa á mér að vera ekki búinn að hringja alla helgina, mér fannst ekki neitt að frétta þannig að það var nú ekki mikið í hættu.. hún er að fara til Danmerkur á fimmtudaginn þannig að ég sé ekki krakkana um helgina, er frekar langt síðan að ég hef séð Garðar og Evu þó ekki sé talað um Siggu Dögg, alltaf brjálað að gera hjá henni. Hringi í hana í vikunni. Íris ætlar að kíkja með krakkana þegar hún kemur aftur frá Danmerku... verð að fara að henda mér í bedda smá vinna á morgun Dagur 107 265 dagar eftir Mánudagur 13 Sept 2004 Enn engin vinna Er búinn að venja mig algjörlega á að vakna fyrir 07, og fara í morgunmat, hringdi um kl 08 í Ásbjörn lögfr. Til að ath hvar málið væri statt og er það nú komið til dómara og ætti að vera þar í að minnsta ½ mánuð..ætla nú samt aðeins að reyna að íta á það. Fór að æfa um kl 09. og síðan að lesa og í lunch. Lagði mig aðeins eftir lunchinn en svo komu sálfræðingurinn og reynslulausnar”fulltrúinn” fékk fund með menni og lagði málið á borðið fyrir hana.. vissi hún lítuð um svona reynslulausn og samf. Þjónust glæpamanna að mínu kaliberi. Seinnipartuirnn fór síðan í ekki neitt, snoker og um kvöldið tók ég aðra æfingu hafði ekki neitt annað að gera þannig að ég tók æfingu yfir 2tíma í dag.. ágætt afrek það..er að taka saman bréf núna sem ég ætla að senda Margreti Frímannsd. Vegna reynslulausna og annara fangelsismála..ætla síðan að fara að drífa mig í háttinn, er með smá vinnu á morgun í plastinu, körunum.. Dagur 106 266 dagar eftir Sunnudagur 12 Sept 2004 Einn einn sunnudagurinn Nákvæmlega þannig, Vaknaði um kl 06:45 fór í morgunmat um kl 07; hékk til 10 fór þá að æfa og síðan í lunch. Efti lunch ákvað ég að taka upp penslana að nýju náði að gera 4 nýjar myndir og finnst þetta alltaf að verað skemmtilegra og skemmtilegra..allur dagurinn fór í þetta.. Dagur 103/4/5 2657dagar eftir Fimmtudagur 9-11 Sept 2004 Rólegt........... 00:29 aðfaranótt sunnudags; Tek saman nokkra daga núna eins og áður fyrr sem segir mér að það er nú frekar lítið um að vera hérna hjá okkur. Dagarnir hafa verið svipaðir tók mér pásu í æfingunum í dag, er búinn að taka vel á því alla vikuna, það var smá vinna á föstudaginn. Albert vinur hringdi á fimmtudagskvöldið fékk leyfi til að tala við mig þar sem hann var að hringja frá Afríku, hann ætti að koma til Íslands eftir 1-2 vikur og ætlar að kíkja í heimsókn þá, gaman að spjalla við kauða alltaf jafn jákvæður og hress. Mamma hringdi á föstudagskvöldið allt þokkalegt að frétta frá þeim bæ,heyrði aðeins í Raggý systir, bað hana um að koma með Marel og Evu næstu helgi ef að það er hægt. Þarf að ath hvort að Íris leyfi það. Í dag byrjaði ég loks aftur að mála og tókst það bara ágætlega.. Fékk enga heimsókn í dag og býst ekki við neinni á morgun nota þá bara tímann til annars Dagur 101-2 269/8 dagar eftir Þriðjud-miðvikud 7/8 Sept 2004 Gæti orðið styttri vist! Það var smá vinna um morguninn, eftir hádegi báða dagana fór í ræktina og lét dagana bara líða. Íris hringdi á miðvikudagskvöldið og sagði mér að hún hafði talað við lögfræðinginn sem er með málið, ætlar hann að drífa í því að taka málið fyrir dóm og fullyrðir að það verði sameinað og að ég eigi rétt á að sækja um reynslulausn eða samf.þjónustu þegar það er komið í gegn. Þannig að ég vona að það fari að styttast í að málið verði tekið fyrir og að þetta hljóti nú annan endi en ég hafi nú búist við. Á mánudagskvöldið heyrði ég aðeins í Torfa mínum en hann varð 19 ára, hann er á leiðinni til kína eftir nokra daga til að hitta vinkonu sína þar..annars er hann bara í Versló og kominn með kærustu sem býr eða er frá Keflavík.. Dagur 100 270 dagar eftir Mánud 6. Sept 2004 Marel og Íris komu í heimsókn Morgunninn fór í það að byrja í nýu vinnunni, var nú hálf slappur en lét mig nú að sjálfsögðu hafa það, var búinn að vinna um kl 10 fór þá í sturtu og að gera mig klárann fyrir heimsóknina, þau komu svo um kl 11,30 Marel var þvílíkt spenntur fór með mér í mat, og fékk sér grjónagraut fannst hann rosalega góður og fékk sér aftur síðan áttu nággrísirnir allan hans hug og gat hann varla litið af þeim augum, var alltaf að halda á þeim, gefa þeim að borða og svo vildi hann teikna mynd handa þeim sem við og gerðum, hengdum myndina upp í kassanum þeirra, sýndi hann þeim myndina vel áður. Síðan var sama rútínan hjá honum, fara í fjöruna, ræktina og upp i bragga að athuga með fleiri kanínur. Áður en að þau fóru þá sáum við nokkrar kindur sem hann vildi ná, og hljóp hann á eftir þeim stanslaust í allavega 10 mínótur þvílíkt úthald, gaman að sjá hvað honum finnst gaman að vera úti í náttúrunni og að leika sér, getur unað sér við hvað sem er. Íris notaði tímann í að slappa af þessháttar, að sjálfsögðu kom hún með ýmislegt sem ég þurfti eins og skyr, ávexti og þessháttar..fóru þau síðan rétt fyrir 18: en þá er heimsóknartíminn búinn og komið að matartímahjá okkur. Gaman var að fá þau í heimsókn svona á mánudegi, einhvernvegin þá styttir það vikuna helling. Dagur 98-99 272-1 dagar eftir Laugard-Sunnud 4-5. Sept 2004 Lasy helgi! Eða þannig, laugardagurinn byrjaði með því að við þurftum að vinna, nokkrir balar höfðu komið inn á föstudagskvöldið, annars er ég búinn að vera slappur með smá kvef og slen. Lét það nú ekki hafa áhrif á mig fór í ræktina og hamaðist í tæpan klukkutíma, kvöldið fór nú ekki í neitt spes, fór snemma að sofa..Sunnudagurinn – vaknaði mjög snemma þar sem ég hafði farið snemma að sofa fékk mér morgunmat, teiknaði síðan nokkrar myndir sem ég ætla síðan að mála. Um hádegisbilið kom Raggý systir og Sigga Rósa í heimsókn og voru hjá mér til kl 17+ klippti Raggy nokkra hausa og seldi nokkur kerti, spjölluðum við vítt og breitt og áttum bara annars fínan dag.. í dag fékk ég nýtt jobb, það er að sjá um beitninguna, það er að skera beitu og útdeila bölum og í raunb bera ábyrgð á því að þetta sé rétt og vel gert. Er að far að sofa núna..klukkan er um 23:53... Dagur 95/6/7 275/4/3 dagar eftir Miðvikud - föstud 1/2/3. Sept 2004 Ekki neitt um að vera! Þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur eru búnir að renna í eitt,veðrið hundleiðinlgt þó ágætt í dag en ekki nennti maður þó neitt út, fór reyndar á þriðjudaginn niður í Grundarfjörð til læknis svona til að tékka á blóðfitunni, bara svona létt tékk þar sem maður er nú að detta í 41. árs aldurinn, fékk að kaupa mér shake í leiðinni.. síðan á þriðjudag og miðvikudag kláraði ég 2 myndir og er bara nokkuð sáttur við árangurinn þó ekki meira sé sagt, engin Erro strax. Er búinn að vera að æfa á fullu alla þessa viku af mikilli ákefð og tók um klst í brennslu í dag, ætlaði að fara í kvöld að taka magann en held að þetta sé nóg fyrir einn dag.. Í kvöld komu nokkrir balar og eigum við að taka þá í fyrramálið.. Var að horfa á MC.Donalds myndina og held ég að ég sé á réttri leið í mataræðinu miðað við það. Skelfilegt að sjá hvernig fólk er orðið ekki bara í Bandaríkjunum heldur líka hérna á Íslandi. Er ekki alveg að kaupa þessa stefnu í skólamat þarf að hugsa enn lengra þar, einnig meiri leikfimi og hreifingu fyrir alla aldurshópa,, það er ekki til neitt sem heitir að það sé ekki tími. Ætla að velja mér einhverja mynd úr tölvunni til að horfa á áður en ég fer að sofa.. Heyrði aðeins í mömmu og pabba í kvöld og aðeins í Írisi en er búinn að heyra í henni alla vikuna, vona að þetta reddist með kokkamálin á Soho. Hringdi þangað í kvöld og var mjög gott að gera....